Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Mennta­skólinn á Trölla­skaga

Upplýsingar um starf

Starf

Framhaldsskólakennari í dönsku

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

50%

Starf skráð

19.03.2026

Umsóknarfrestur

07.04.2026

Framhaldsskólakennari í dönsku

Menntaskólinn á Tröllaskaga auglýsir eftir framhaldsskólakennara í 50% staðbundna stöðu til að kenna dönsku í stað- og fjarnámi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Kennari tekur þátt og ber ábyrgð í starfi sínu samkvæmt reglugerð 1100/2007, 7. grein.

Hæfniskröfur

Umsækjendur skulu hafa hæfni og rétt til að nota starfsheitið kennari, vera með sérhæfingu til að kenna dönsku samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla, auk almennrar hæfni í samræmi við lög 95 frá 1. júli 2019.

Að auki þarf viðkomandi kennari að

  • vera lipur í notkun upplýsingatækni og hafa reynslu af notkun hennar í námi- og kennslu

  • vilja vinna eftir einkunnarorðum skólans; frumkvæði - sköpun - áræði

  • hafa mikinn áhuga á eða reynslu af fjarkennslu-, fjarvinnu og fjarsamstarfi

  • hafa þekkingu á vendikennslu, leiðsagnarmati og aðferðafræði fjarnáms

  • mjög góða samskipta- og samstarfshæfni

  • hafa einbeittan vilja til þróunar í starfi og starfsháttum

Eftirsóknarvert er ef umsækjendur hafa menntun, þekkingu og reynslu sem nýtist skólanum umfram það starf sem er auglýst.

Skólinn leggur áherslu á fjölbreyttar verkefnamiðaðar kennsluaðferðir, virka notkun kennslukerfis (Moodle), fjölbreytta notkun kennsluhugbúnaðar og reynsla á þeim sviðum er því mikill kostur. Frekari upplýsingar um menntunarfræði skólans má finna í grein stjórnenda um Tröllaskagamódelið í Skólaþráðum https://skolathraedir.is/2021/03/09/trollaskagamodelid-nam-og-kennsla-i-menntaskolanum-a-trollaskaga/

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.

Einkunnarorð Menntaskólans á Tröllaskaga eru: Frumkvæði, sköpun og áræði. Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2026. Við leggjum áherslu á gott samstarf við samfélagið og umhverfi skólans. Laun greiðast samkvæmt stofnanasamningi skólans við KÍ. Auglýsingin gildir í 6 mánuði. Öll kyn eru hvött til að sækja um starfið.

Með umsókn skal fylgja:

  • Bréf þar sem fram koma upplýsingar tengdar hæfnikröfum ásamt framtíðarsýn fyrir starfið

  • Ferilskrá

  • Afrit af prófskírteinum

  • Sakavottorð

  • Upplýsingar um umsagnaraðila sem má hafa samband við

Hafi viðkomandi reynslu og þekkingu umfram það sem í auglýsingunni felst sem nýtist skólanum er möguleiki á auknu starfshlutfalli.

Starfshlutfall er 50%

Umsóknarfrestur er til og með 07.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Lára Stefánsdóttir

skólameistari

Tölvupóstur: lara@mtr.is

Sími: 4604240

Jóna Vilhelmína Héðinsdóttir

aðstoðarskólameistari

Tölvupóstur: villa@mtr.is

Sími: 4604240

Þjónustuaðili

Mennta­skólinn á Trölla­skaga

Upplýsingar um starf

Starf

Framhaldsskólakennari í dönsku

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

50%

Starf skráð

19.03.2026

Umsóknarfrestur

07.04.2026