Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

FVA

Upplýsingar um starf

Starf

Spænskukennari óskast

Staðsetning

Vesturland

Starfshlutfall

50%

Starf skráð

20.03.2026

Umsóknarfrestur

30.03.2026

Spænskukennari óskast

Spænskukennari óskast í 50% starf við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. FVA er framsækinn og traustur framhaldsskóli sem starfar samkvæmt þremur gildum; jafnrétti, virðingu og fjölbreytileika. Nemendur eru um 500 talsins í bók- og verknámi og starfsfólk skólans 70 manns. Flestir nemendur koma frá Akranesi og nágrannasveitarfélögum og við skólann er starfrækt heimavist. Áhersla er lögð á lýðræðislega kennslu- og stjórnunarhætti og notalegan skólabrag.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • ber ábyrgð á kennslu, undirbúningi og námsmati í greininni

  • skapar hvetjandi og jákvætt námsumhverfi

  • tekur virkan þátt í faglegu samstarfi, starfsþróun og stefnumótun skólans

Hæfniskröfur

  • Háskólapróf í spænsku

  • Kennsluréttindi

  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfileikar

  • Faglegur metnaður og frumkvæði

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.

  • Kynningarbréf þar sem fram koma áherslur og nálgun í spænskukennslu á framhaldsskólastigi

  • Afrit af prófskírteinum í spænsku og leyfisbréfi framhaldsskólakennara

  • Upplýsingar um umsagnaraðila sem má hafa samband við

Ákvörðun um ráðningu byggir á innsendum gögnum og viðtali. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisáætlun FVA við ráðningar í störf við skólann.

Starfshlutfall er 50%

Umsóknarfrestur er til og með 30.03.2026

Nánari upplýsingar veitir

Steinunn Inga Óttarsdóttir

Tölvupóstur: steinunn@fva.is

Sími: 855 5720

Dröfn Guðmundsdóttir

Tölvupóstur: drofng@fva.is

Sími: 662 7615

Þjónustuaðili

FVA

Upplýsingar um starf

Starf

Spænskukennari óskast

Staðsetning

Vesturland

Starfshlutfall

50%

Starf skráð

20.03.2026

Umsóknarfrestur

30.03.2026