
Þjónustuaðili
Menntaskólinn við Hamrahlíð
Upplýsingar um starf
Starf
Rekstrarstjóri í matsölu nemenda í Menntaskólanum við Hamrahlíð
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
23.03.2026
Umsóknarfrestur
07.04.2026
Rekstrarstjóri í matsölu nemenda í Menntaskólanum við Hamrahlíð
Menntaskólinn við Hamrahlíð auglýsir fyrir hönd Nemendafélags skólans, NFMH, starf rekstrarstjóra í matsölu nemenda, Sómalíu, sem nemendur hafa rekið í 25 ár. MH er heilsueflandi framhaldsskóli með yfir 1000 nemendur. Starfið felur í sér mikil samskipti í skemmtilegu og krefjandi umhverfi með ungu fólki.
Helstu verkefni og ábyrgð
Í starfinu felst að hafa yfirumsjón með öllu sem tengist rekstri matsölunnar. T.d. má nefna:
Innkaup
ákveða vöruúrval í versluninni
vera i samskiptum við birgja og panta og kaupa inn allar vörur sem eru seldar í Sómalíu
Samstarf með matráði eldhússins
með pantanir frá birgjum
með matseðla vikunnar
uppsetningu og frágang í tengslum við heitan mat í hádeginu og salatbar
Tækjaumsjón
sjá um kassakerfið, sjá um uppgjör og vera í samskiptum við þjónustuaðila
sjá um að kaffivélar, kælar og öll tæki sem rekstrinum tengjast séu hrein og í lagi
Starfsfólk
sjá um að ráða nemendur til starfa og skipuleggja vaktaplan þeirra
sjá um fjármál og launavinnslu í samvinnu við fjármálastjóra MH
Önnur verkefni sem tengjast rekstrinum
Hæfniskröfur
Lögð er áhersla á metnað og sjálfstæði í starfi, stundvísi og skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði sem og að geta starfað með ungu fólki..
Stúdentspróf eða sambærileg menntun.
Góð tölvukunnátta og fjármálalæsi
Íslenskukunnátta áskilin og gott vald á ensku
Reynsla af sambærilegu starfi er mikill kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Um er að ræða starf í 9 mánuði ár hvert, á meðan nemendur eru í skólanum. Ráðið er frá miðjum ágúst og fram í maí og er viðvera alla virka daga skv. skóladagatali, frá kl. 8:00 til 15:00. Starfið gæti hentað vel þeim sem vilja nýta sumarið í annað. Í Sómalíu starfa auk rekstrarstjóra, matráður í 100% starfi, starfsmaður í hlutastarfi og nemendur skólans starfa einnig við afgreiðslu eins og þörf er.
Áhersla er lögð á að umsóknum fylgi ferilsskrá, sakavottorð og upplýsingar um umsagnaraðila.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 07.04.2026
Nánari upplýsingar veitir
Helga Jóhannsdóttir
Tölvupóstur: rektor@mh.is

Þjónustuaðili
Menntaskólinn við Hamrahlíð
Upplýsingar um starf
Starf
Rekstrarstjóri í matsölu nemenda í Menntaskólanum við Hamrahlíð
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
23.03.2026
Umsóknarfrestur
07.04.2026