Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Yfirlæknir - Geðheilsuteymi austur HH

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

30.03.2026

Umsóknarfrestur

09.04.2026

Yfirlæknir - Geðheilsuteymi austur HH

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins auglýsir laust til umsóknar 100% ótímabundið starf yfirlæknis hjá Geðheilsuteymi austur.

Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf sem reynir á frumkvæði, skipulagshæfni og samskiptahæfileika. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 15. apríl nk.

Í Geðheilsuteymi austur starfar þverfaglegur hópur fagfólks: hjúkrunarfræðingar, geðlæknar, sálfræðingar, þroskaþjálfi, geðsjúkraliði, notendafulltrúi, iðjuþjálfi, félagsráðgjafar, fjölskyldufræðingar og skrifstofustjóri. Lögð er rík áhersla á jákvæðan starfsanda og faglegan stuðning.

Nánari upplýsingar má finna inni á www.island.is/starfatorg

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Yfirumsjón með læknismeðferð notenda teymis

  • Samvinna í þverfaglegu geðheilsuteymi

  • Ráðgjöf og fræðsla til starfsmanna teymis

  • Fræðsla til notenda og aðstandenda

  • Innleiðing faglegra leiðbeininga og nýjunga á sviði

  • Skipulagning og veiting þeirrar þjónustu sem þörf er á hverju sinni

  • Samvinna við starfsfólk heilsugæslustöðva og annarra stofnana

  • Stuðla að vísinda-, þróunar-, og gæðastarfi á fagsviði í samvinnu við starfsmenn HH

  • Samskipti við aðra fagaðila og stofnanir

  • Ráðgjöf og fræðsla til starfsmanna heilsugæslustöðva á svæðinu

  • Þátttaka í þróun og skipulagningu þjónustunnar

Hæfniskröfur

  • Íslenskt lækningaleyfi

  • Sérfræðimenntun í geðlækningum skilyrði

  • Reynsla og þekkin af sjúkraskráningarkerfi Sögu skilyrði

  • Framúrskarandi samskiptahæfni skilyrði

  • Framúrskarandi skipulagshæfni, góð yfirsýn og skilvirkni í starfi skilyrði

  • Faglegur metnaður, frumkvæði og sjálfstæði í starfi skilyrði

  • Reynsla af vinnu í geðendurhæfingu skilyrði

  • Breið þekking og reynsla í geðlækningum æskileg

  • Hæfni og áhugi á teymis- og verkefnavinnu

  • Þekking, reynsla og hæfni á sviði stjórnunar

  • Þekking og reynsla af því að sinna fræðslu og námskeiðshaldi skilyrði

  • Góð færni og reynsla af starfi í þverfaglegu teymi

  • Framsýn og metnaður í starfi

  • Jákvæði og sveigjanleiki

  • Áhugi og vilji til að starfa í þverfaglegu teymi

  • Góð íslenskukunnátta er nauðsynleg

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdastjóra mannauðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir hreinu sakavottorði.

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 09.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Íris Dröfn Steinsdóttir

Tölvupóstur: iris.drofn.steinsdottir@heilsugaeslan.is

Sími: 513-6320

Íris Dögg Harðardóttir

Tölvupóstur: Iris.Dogg.Hardardottir@heilsugaeslan.is

Sími: 513-5000

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Yfirlæknir - Geðheilsuteymi austur HH

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

30.03.2026

Umsóknarfrestur

09.04.2026