
Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Sólvangi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
27.03.2026
Umsóknarfrestur
07.04.2026
Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Sólvangi
Heilsugæslan Sólvangi auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi í 80-100% ótímabundið starf þar sem megin starfssvið er hjúkrunarmóttaka ásamt ung- og smábarnavernd. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 15. apríl nk.
Á Heilsugæslunni Sólvangi starfar sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og skemmtilegu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín. Lögð er áhersla á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu.
Mikil þróunarvinna er í gangi á stöðinni og stöðugt er unnið að því að bæta þjónustu við skjólstæðinga. Hjúkrunarfræðingar sinna krefjandi og áhugaverðum verkefnum, margvísleg tækifæri eru til að þróa með sér góða þekkingu og hæfni í starfi.
Ný og spennandi tækifæri eru til starfsþróunar innan HH, þar sem hjúkrunarfræðingum stendur til boða að þróa sig í starfi s.s starfsþróunarár og sérnám í heilsugæsluhjúkrun. Heilsugæslan Sólvangi leggur áherslu á einstaklingsmiðaða aðlögun og stuðning við nýja starfsmenn.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna inni á www.island.is/starfatorg
Helstu verkefni og ábyrgð
Markmið ung- og smábarnaverndar er að efla heilsu, vellíðan og þroska ungra barna með reglulegum heilsufarsskoðunum ásamt stuðningi og heilbrigðisfræðslu til fjölskyldna þeirra. Heilsuvernd skólabarna felst m.a. í reglubundnu heilbrigðiseftirliti nemenda og fræðslu. Áhersla er lögð á stuðning við fjölskylduna. Fylgst er með þroska barna frá fæðingu til skólaaldurs.
Í móttöku sinna hjúkrunarfræðingar fólki á öllum aldri, bráðaerindum, bókuðum tímum og símaráðgjöf ásamt því að svara Heilsuveruskilaboðum. Í bókaðri móttöku er tekið á móti erindum s.s. ferðamannaheilsuvernd, sárameðferð, lyfjagjöfum ásamt heilsueflandi móttöku.
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Þekking og áhugi á forvarnar- og heilsueflingarstarfi
A.m.k. 2 ára starfsreynsla í heilsugæslu skilyrði
Þekking á sjúkraskrákerfi Saga skilyrði
Reynsla af heilsugæsluhjúkrun skilyrði
Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
Reynsla og áhugi á teymisvinnu
Reynsla af bráða- og slysamóttöku er kostur
Mikil samskiptahæfni og sveigjanleiki
Íslenskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdastjóra mannauðs, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir hreinu sakavottorði.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindarstefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 07.04.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Sólvangi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
27.03.2026
Umsóknarfrestur
07.04.2026