Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Doktorsnemi við Rafmagns- og tölvuverkfræðideild

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

25.03.2026

Umsóknarfrestur

30.04.2026

Doktorsnemi við Rafmagns- og tölvuverkfræðideild

Laust er til umsóknar fullt starf doktorsnema við Rafmagns- og tölvuverkfræðideild Háskóla Íslands með sérhæfingu í læknisfræðilegri myndgreiningu. Starfið er styrkt til þriggja ára af Rannsóknasjóði Rannís.

Verkefnið miðar að því að nota nýlega aðferð sem byggð er á ómun með skuggaefni (SHAPE) til þess að meta og kortleggja þrýsting í legvefjum. Þannig verður mögulega til nýtt rannsóknarviðmið sem getur hjálpað til við greiningu á legslímuvillu/endómetríósu og legslímukirtla- og vöðvavillu, auk þess að greina hnúta í legi og fylgjast með árangri meðferðar.

Verkefnið er unnið í nánu samstarfi við Thomas Jefferson University, Philadelphia, PA, USA.

Leiðbeinandi og aðalrannsakandi verkefnisins er Dr. Valgerður G. Halldórsdóttir, lektor við Rafmagns- og tölvuverkfræðideild. Verkefnið er unnið í samvinnu við Thomas Jefferson University, Philadelphia, PA, USA. Hópurinn þar er leiddur af Dr. Priscillu Machado og Dr. Flemming Forsberg sem eru sérfræðingar í notkun skuggaefna við ómun. Báðir rannsóknarhópar sérhæfa sig í klínískri ómun og hafa áður starfað saman að þróun SHAPE aðferðarinnar og beitt henni á mismunandi svæði líkamans.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Greining á myndum og gögnum úr klínískum rannsóknum í legi

  • Þróun sjálfvirkrar aðferðar til að kortleggja þrýstingsmat í legi og setja fram á myndrænan hátt

  • Athugun á því hvort nota megi millivefjaþrýsting sem nýtt rannsóknarviðmið á legslímuvillu/endómetríósu og legslímukirtla- og vöðvavillu

  • Þátttaka í alþjóðlegu samstarfi við virtan rannsóknarhóp á sviði ómunar og læknisfræðilegrar myndgreiningar

  • Miðlun á rannsóknarniðurstöðum svo sem skrif fræðigreina og kynningar á innlendum og alþjóðlegum ráðstefnum

  • Skýrslugerð til kynningar á rannsóknarvinnu í samvinnu við leiðbeinanda

Hæfniskröfur

  • Meistaragráða í tengdum greinum, þ.m.t. læknisfræðilegri verkfræði, rafmagns- og tölvuverkfræði, tölvunarfræði eða læknisfræðilegri eðlisfræði. Umsækjandi skal hafa lokið prófi þegar starf hefst.

  • Góð kunnátta í forritun, merkjafræði og læknisfræðilegri myndvinnslu og gagnaúrvinnslu er æskileg.

  • Reynsla á ómun með skuggaefni er æskileg.

  • Góð færni í mannlegum samskiptum.

  • Góð enskukunnátta bæði í rituðu og töluðu máli.

  • Geta til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi.

Ráðning er háð því að umsækjandi sæki formlega um doktorsnám við Rafmagns- og tölvuverkfræðideild Háskóla Íslands og að umsóknin sé samþykkt af deild.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Áætlað er að starfið hefjist ekki seinna en 1. september 2026.

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:

  • Ferilskrá (viðeigandi starfsreynsla, forritunarkunnátta og birtingar ef við á).

  • Greinagerð yfir rannsóknaáhuga og styrkleika auk rannsóknaryfirlýsingar sem útskýrir af hverju viðkomandi vill taka þátt og hvað hann getur lagt til verkefnisins.

  • Kynningarbréf

  • Afrit af prófskírteinum (BSc og MSc) ásamt upplýsingum um námskeið og einkunnir.

  • Stafrænt afrit af meistararitgerð (á ensku ef unnt er) og/eða aðrar birtingar sem umsækjandi hefur skrifað.

  • Upplýsingar um tvo umsagnaraðila og tengsl þeirra við umsækjanda.

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.

Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.

Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.

Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 30.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Valgerður Guðrún Halldórsdóttir

Lektor

Tölvupóstur: valgud@hi.is

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Doktorsnemi við Rafmagns- og tölvuverkfræðideild

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

25.03.2026

Umsóknarfrestur

30.04.2026