
Þjónustuaðili
FVA
Upplýsingar um starf
Starf
Húsasmíði
Staðsetning
Vesturland
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
19.03.2026
Umsóknarfrestur
30.03.2026
Húsasmíði
Í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi (FVA) vantar kennara með mikla og fjölbreytta reynslu í húsasmíði.
FVA er framsækinn og traustur framhaldsskóli sem starfar samkvæmt þremur gildum; jafnrétti, virðingu og fjölbreytileika. Nemendur eru 480 og starfsfólk skólans um 70. Flestir nemendur koma frá Akranesi og nágrannasveitarfélögum og við skólann er starfrækt heimavist. Námsframboð er fjölbreytt, bæði í bók- og verknámi og starfsmannahópurinn er kraftmikill og metnaðarfullur. Áhersla er lögð á lýðræðislega kennslu- og stjórnunarhætti og notalegan skólabrag í samræmi við gildi skólans.
Helstu verkefni og ábyrgð
Kennsla og námsmat í bóklegum og verklegum greinum
Skapa faglegt og hvetjandi námsumhverfi
Taka þátt í samstarfi um nýsköpun, starfsþróun og stefnumótun í skólanum
Hæfniskröfur
Fjölbreytt reynsla af margskonar tré- og húsasmíði er skilyrði
Viðkomandi þarf að falla að þeim starfsmannahópi sem fyrir er í skólanum
Iðnmeistari
Leyfisbréf kennara
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
Kynningarbréf
Ferilskrá
Upplýsingar um umsagnaraðila sem má hafa samband við
Afrit af prófskírteinum og leyfisbréfi
Ákvörðun um ráðningu byggir á innsendum gögnum og viðtölum. Öllum umsóknum verður svarað.
Starfshlutfall er 50-100%
Umsóknarfrestur er til og með 30.03.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
FVA
Upplýsingar um starf
Starf
Húsasmíði
Staðsetning
Vesturland
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
19.03.2026
Umsóknarfrestur
30.03.2026