
Þjónustuaðili
FVA
Upplýsingar um starf
Starf
Húsasmíði í dreifnámi
Staðsetning
Vesturland
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
19.03.2026
Umsóknarfrestur
07.04.2026
Húsasmíði í dreifnámi
Í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi (FVA) vantar kennara með mikla og fjölbreytta reynslu í húsasmíði til að kenna í dreifnámi. Dreifnámið er verkefnabundið fjarnám með staðbundnum lotum aðra hverja helgi á starfstíma skólans,.
FVA er framsækinn og traustur framhaldsskóli sem starfar samkvæmt þremur gildum; jafnrétti, virðingu og fjölbreytileika. Nemendur eru 480 og starfsfólk skólans um 70. Flestir nemendur koma frá Akranesi og nágrannasveitarfélögum og við skólann er starfrækt heimavist. Námsframboð er fjölbreytt, bæði í bók- og verknámi og starfsmannahópurinn er kraftmikill og metnaðarfullur. Áhersla er lögð á lýðræðislega kennslu- og stjórnunarhætti og notalegan skólabrag í samræmi við gildi skólans.
Helstu verkefni og ábyrgð
Bera ábyrgð á undirbúningi, kennslu og námsmati
Skapa faglegt og hvetjandi námsumhverfi
Taka virkan þátt í samstarfi kennara á brautinni
Hæfniskröfur
Starfsreynsla af margskonar tré- og húsasmíði er skilyrði
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, skipulagningu og teymisvinnu
Iðnmeistari
Leyfisbréf kennara
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
Kynningarbréf
Ferilskrá
Upplýsingar um umsagnaraðila sem má hafa samband við
Afrit af prófskírteinum og leyfisbréfi
Ákvörðun um ráðningu byggir á innsendum gögnum og viðtölum. Öllum umsóknum verður svarað.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 07.04.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
FVA
Upplýsingar um starf
Starf
Húsasmíði í dreifnámi
Staðsetning
Vesturland
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
19.03.2026
Umsóknarfrestur
07.04.2026