
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraþjálfari í þverfaglegt endurhæfingarteymi
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
70%
Starf skráð
15.03.2026
Umsóknarfrestur
27.03.2026
Sjúkraþjálfari í þverfaglegt endurhæfingarteymi
Heilbrigðisstofnun Suðurlands óskar eftir sjúkraþjálfara í 70% starf í þverfaglegt endurhæfingarteymi í Árborg. Um er að ræða tímabundið 3 ára starf á heilsugæslu.
Um er að ræða áhugavert og fjölbreytt starf í metnaðarfullu teymi, starfið er nýtt og hefur starfsmaður því tækifæri til að hafa áhrif á þróun nýrrar þjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Þátttaka í þverfaglegu teymisstarfi
Ráðgjöf til heimahjúkrunar og félagsþjónustu vegna vitjana
Mat á stöðu og færni einstaklinga í heimahúsi og skráning í samræmi við verklag
Gerð endurhæfingaáætlana, uppsetningu þjálfunaráætlana, fræðsla, leiðbeiningar og eftirfylgd.
Mat á hjálpartækjaþjörf og ráðgjöf um val og notkun hjálpartækja
Þátttaka í faglegri þróun þjónustunnar og mótun verklags innan endurhæfingarteymisins
Hæfniskröfur
Sjúkraþjálfari með starfsleyfi frá Landlækni
A.m.k. 3 ára starfsreynsla sem sjúkraþjálfari
Góð íslenskukunnátta í tali og rituðu máli er skilyrði
Reynsla af teymisvinnu, heimaþjónustu eða endurhæfingu er kostur
Frumkvæði, metnaður og sjálfstæð vinnubrögð
Framúrskarandi samskiptahæfni
Ökuréttindi
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag sjúkraþjálfara hafa gert.
HSU veitir heilsugæslu-, sjúkrahúss- og öldrunarþjónustu ásamt því að annast sjúkraflutninga. Þjónustusvæðið nær frá Þorlákshöfn í vestri til Hafnar í austri. Hlutverk HSU er að móta, þróa og útfæra heilbrigðisþjónustu í umdæminu og tryggja íbúum Suðurlands og öðrum þjónustuþegum jafnan aðgang að bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni.
Þjónustumarkmið HSU byggja á gildum okkar um fagmennsku, virðingu og samvinnu. Velferð og þarfir þjónustuþega eru okkar leiðarljós.
Umsókninni þurfa að fylgja staðfestar upplýsingar um menntun, starfsleyfi og fyrri störf.
Starfshlutfall og upphafsdagur ráðningar er eftir samkomulagi.
Starfshlutfall er 70%
Umsóknarfrestur er til og með 27.03.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraþjálfari í þverfaglegt endurhæfingarteymi
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
70%
Starf skráð
15.03.2026
Umsóknarfrestur
27.03.2026