Þjónustuaðili
Sýslumaðurinn á Vesturlandi
Upplýsingar um starf
Starf
Skrifstofumaður
Staðsetning
Vesturland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
18.03.2026
Umsóknarfrestur
30.03.2026
Skrifstofumaður
Laus er til umsóknar staða skrifstofumanns við embætti sýslumannsins á Vesturlandi. Dagleg starfsstöð er á skrifstofu embættisins á Akranesi. Um er að ræða ótímabundna ráðningu með sex mánaða reynslutíma. Starfshlutfall er 100% og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið felst í almennri afgreiðslu á starfsstöð og símsvörun, s.s. vegna ökuskírteina, vegabréfa, veðbókarvottorða o.fl. Þá sinnir starfsmaðurinn öðrum tilfallandi verkefnum, t.d. á sviði fullnustu og þinglýsinga, sem og stoðþjónustu við aðrar deildir embættisins. Í boði er áhugavert starf innan stofnunar í stöðugri þróun.
Starfið felur í sér mikil samskipti við viðskiptavini og hagsmunaaðila. Unnið er í teymisvinnu þvert á skrifstofur embættisins.
Hæfniskröfur
Stúdentspróf (3. þrep íslenska hæfnirammans) eða reynsla í sambærilegu starfi.
Rík þjónustulund og jákvætt viðmót er skilyrði.
Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum, samvinnufærni og álagsþol.
Frumkvæði og metnaður í starfi, lausnamiðað hugarfar og nákvæm vinnubrögð.
Hæfni í greiningu, túlkun og framsetningu gagna.
Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti.
Góð enskukunnátta. Önnur tungumálakunnátta er kostur.
Gott vald á upplýsingatækni og hæfni til að tileinka sér nýjungar á því sviði.
Um er að ræða afar fjölbreytt starf sem krefst ríkulegrar þjónustulundar og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum. Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af störfum þar sem reynt hefur á þessa eiginleika.
Sýslumaðurinn á Vesturlandi er framsækin stjórnsýslu- og þjónustustofnun. Áherslur vinnustaðarins byggja á traustri og faglegri þjónustu, skilvirku verklagi og öflugri liðsheild. Við mat á umsóknum verður horft til þess að umsækjandi falli sem best að þörfum starfsstöðvarinnar og embættisins í heild.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Umsókn um starfið skal fylgja ítarleg starfsferilskrá, afrit af prófskírteinum ef við á og kynningarbréf. Í umsóknargögnum skal gerð grein fyrir ástæðum umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið, ásamt upplýsingum um umsagnaraðila auk annarra atriða sem máli kunna að skipta. Við mat á umsóknum verður sérstaklega horft til gæða umsóknar og umsóknargagna.
Einstaklingar óháð kyni eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Athygli er vakin á því að umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 30.03.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Sýslumaðurinn á Vesturlandi
Upplýsingar um starf
Starf
Skrifstofumaður
Staðsetning
Vesturland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
18.03.2026
Umsóknarfrestur
30.03.2026