Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Sýslu­mað­urinn á höfuð­borg­ar­svæðinu

Upplýsingar um starf

Starf

Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu óskar að ráða matreiðslumann

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

17.03.2026

Umsóknarfrestur

07.04.2026

Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu óskar að ráða matreiðslumann

Leitað er að öflugum matreiðslumanni til að matreiða fjölbreyttan og heilsusamlegan hádegismat fyrir starfsfólk.

Markmið með rekstri mötuneytis er að sem flestir starfsmenn borði þar daglega. Til að ná því markmiði útbúa matreiðslumaður og aðstoðarmaður hollan og fjölbreyttan mat sem unninn er frá grunni, mat sem uppfyllir lýðheilsumarkmið embættis landlæknis og höfðar til sem flestra starfsmanna.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón, rekstur og skipulagning mötuneytis

  • Undirbúningur, skipulag og framreiðsla máltíða og annarra veitinga

  • Dagleg verkstjórn aðstoðarmanns

  • Innkaup og rekstur mötuneytis á sem hagkvæmastan hátt

  • Fylgjast með þróun og breytingum á sviði matseldar

  • Að aðstæður og búnaður í eldhúsi og matsal séu í samræmi við kröfur um hollustuhætti, hreinlæti og aðrar reglur sem um slíka starfsemi gilda

Hæfniskröfur

  • Matartæknanám skilyrði, sveinspróf eða meistarapróf í matreiðslu æskilegt

  • Reynsla af rekstri eldhúss fyrir stóra hópa

  • Fagleg vinnubrögð og skipulagshæfni

  • Jákvæðni, þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum

  • Snyrtimennska

  • Frumkvæði, áreiðanleiki, drifkraftur

  • Sjálfstæði, útsjónarsemi

  • Almenn tölvukunnátta

  • Íslenskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Um er að ræða 100% starf sem er 36 klst. vinnuvika.

Umsókn skal helst skilað í gegnum umsóknarkerfi Alfreðs og þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda í starfið.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsóknir gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Við ráðningu er tekið mið af jafnréttisstefnu Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu.

Sýslumenn fara með framkvæmdarvald og stjórnsýslu ríkisins í héraði, hver í sínu umdæmi, skv. lögum nr. 50/2014. Í umdæmi sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu búa um 64% landsmanna. Nánari upplýsingar um verkefni sýslumanna má finna á island.is/syslumenn.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 07.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Baldur Gísli Jónsson

Mannauðsstjóri

Tölvupóstur: baldur.jonsson@syslumenn.is

Þjónustuaðili

Sýslu­mað­urinn á höfuð­borg­ar­svæðinu

Upplýsingar um starf

Starf

Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu óskar að ráða matreiðslumann

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

17.03.2026

Umsóknarfrestur

07.04.2026