Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Vegagerðin

Upplýsingar um starf

Starf

Deildarstjóri umsjónardeildar á Austursvæði

Staðsetning

Austurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

16.03.2026

Umsóknarfrestur

08.04.2026

Deildarstjóri umsjónardeildar á Austursvæði

Við leitum að öflugum einstaklingi í starf deildarstjóra umsjónardeildar á Austursvæði. Starfið er fjölbreytt og krefjandi og felur í sér verkefnastýringu nýframkvæmda og viðhalds á starfssvæði Vegagerðarinnar á Austursvæði.

Umsjónardeild ber ábyrgð á umsjón og eftirliti með framkvæmdum á svæðinu. Í samráði við mannvirkjasvið sinnir deildin viðhaldi bundinna slitlaga, styrkingum og endurbótum ásamt efnisvinnslu á svæðinu_._ Svæðismiðstöð Vegagerðarinnar er á Reyðarfirði og hægt verður að nýta starfsaðstöðu þjónustustöðvarinnar í Fellabæ.

Helstu verkefni og ábyrgð

Deildarstjóri leiðir starfsemi umsjónardeildar og sýnir gott fordæmi í öryggismálum. Deildarstjóri hefur yfirsýn yfir stöðu verkefna, framvindu þeirra og kostnað.

  • Yfirumsjón með nýframkvæmdum og öðrum framkvæmdum sem svæðinu eru falin, þannig að farið verði eftir útboðslýsingum, stöðlum og verklýsingum

  • Umsjón með framkvæmdum umferðaröryggisaðgerða og viðhaldi varnargarða

  • Gerð viðhaldsáætlana og umsjón með slitlagabanka

  • Umsjón með viðhaldi brúa og varnargarða, áætlanagerð og framkvæmd

  • Umsjón með efnisvinnslu ásamt efniskaupum á svæðinu

  • Mælingar tengdar framkvæmdum, s.s. útsetningar, framkvæmda- og úttektarmælingar og kostnaðareftirlit

  • Undirbúningur og áætlanagerð þeirra verkefna sem deildinni eru falin

Hæfniskröfur

  • Verk- eða tæknifræðingur eða önnur menntun sem nýtist í starfi

  • Reynsla af verkefnastjórnun á sviði jarðvinnuframkvæmda

  • Þekking á landsvæði kostur

  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum

  • Hæfni til að leiða teymi

  • Frumkvæði og faglegur metnaður

  • Skipulögð og öguð vinnubrögð í starfi

  • Góð öryggisvitund

  • Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Í umsókninni komi fram upplýsingar um fyrri störf og upplýsingar um þær hæfnikröfur sem óskað er eftir, auk afrita af prófskírteinum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.

Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður, stærsta framkvæmdastofnun landsins með gríðarlega fjölbreytta verkefnaflóru. Vegagerðin þróar og annast samgöngukerfi, á sjó og landi, á sem hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins, öryggi vegfarenda og umhverfissjónarmið að leiðarljósi. Um 370 starfsmenn Vegagerðarinnar starfa á 18 starfsstöðvum víðsvegar um landið.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 08.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Loftur Þór Jónsson

svæðisstjóri

Tölvupóstur: loftur.th.jonsson@vegagerdin.is

Sími: 860 5665

Þjónustuaðili

Vegagerðin

Upplýsingar um starf

Starf

Deildarstjóri umsjónardeildar á Austursvæði

Staðsetning

Austurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

16.03.2026

Umsóknarfrestur

08.04.2026