
Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Lektor í iðnaðarverkfræði
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
17.03.2026
Umsóknarfrestur
14.04.2026
Lektor í iðnaðarverkfræði
Laust er til umsóknar fullt starf lektors í iðnaðarverkfræði við Iðnaðarverkfræði, vélaverkfræði og tölvunarfræðideild á Verkfræði- og náttúruvísindasviði Háskóla Íslands.
Samkvæmt reglum Háskóla Íslands skiptast starfsskyldur kennara í þrjá meginþætti: rannsóknir, kennslu og stjórnun.
Helstu verkefni og ábyrgð
Rannsóknir og kennsla í iðnaðarverkfræði, með áherslu á rekstrarstjórnun og skyld svið, svo sem framleiðslukerfi, aðfangakeðjustjórnun og aðgerðagreiningu
Leiðbeining lokaverkefna framhaldsnema
Þróun náms og kennslu á fagsviðinu, sérstaklega á sviði rekstrarstjórnar og tengdra greina
Stjórnun, svo sem í formi setu í nefndum
Kynningar á náminu
Hæfniskröfur
Doktorspróf í iðnaðarverkfræði eða skyldum greinum
Rannsóknavirkni á sviði iðnaðarverkfræði
Kennslureynsla á háskólastigi
Reynsla af skipulagningu námskeiða, verklegrar kennslu og leiðbeiningu lokaverkefna á háskólastigi er æskileg
Reynsla á sviði rekstrarstjórnar, framleiðslukerfa, aðfangakeðjustjórnunar eða aðgerðagreiningar er æskileg
Góð samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
Sjálfstæð vinnubrögð og hæfni til að miðla þekkingu
Góð enskukunnátta, bæði rituðu og töluðu máli
Reynsla af þátttöku í alþjóðlegum rannsóknaverkefnum er kostur
Hæfni til kennslu á íslensku er kostur. Gerð er krafa um að innan fjögurra ára frá ráðningu hafi B1-stigi verið náð. Háskóli Íslands býður upp á aðstoð við að öðlast nauðsynlega tungumálafærni.
Við ráðningu verður tekið mið af því að sá er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum Iðnaðarverkfræði, vélaverkfræði og tölvunarfræðideildar.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Gert er ráð fyrir að starfið hefjist 4. ágúst 2026 eða eftir samkomulagi.
Ráðið verður í starfið til fimm ára, með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum, sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókn sinni:
Kynningarbréf þar sem m.a. kemur fram hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur
Prófskírteini eða eftir atvikum vottorð um námsferil
Akademíska ferilskrá (Curriculum Vitae)
Ritaskrá
Skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið
Greinargerð um rannsóknar- og kennsluáform ef til ráðningar kemur
Upplýsingar um mögulega umsagnaraðila sem hafa má samband við
Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skal umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Umsóknargögnum sem ekki er hægt að skila rafrænt skal skila í tvíriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.
Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt á 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.
Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 14.04.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Lektor í iðnaðarverkfræði
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
17.03.2026
Umsóknarfrestur
14.04.2026