Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Suður­nesja

Upplýsingar um starf

Starf

Sumarafleysing - Móttökuritari

Staðsetning

Suðurnes

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

16.03.2026

Umsóknarfrestur

26.03.2026

Sumarafleysing - Móttökuritari

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða móttökuritara til starfa á heilsugæsluna í Reykjanesbæ.Um er að ræða tímabundið starf í sumarafleysingar. Unnið er á vöktum. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið ströf sem fyrst eða eftir samkomulagi.

Á HSS er lögð áhersla á góða samvinnu, stuttar boðleiðir og góðan starfsanda.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfið felur meðal annars í sér almenna afgreiðslu, uppgjör, símsvörun og bókanir. Upplýsingagjöf og aðstoð við skjólstæðinga auk samvinnu og aðstoðar við aðrar deildir innan stofnunarinnar.

Hæfniskröfur

  • Nám sem nýtist í starfi t.d. heilbrigðisritari eða önnur heilbrigðismenntun er kostur

  • Góð almenn tölvukunnátta

  • Reynsla af excel er kostur

  • Góð þjónustulund og samskiptahæfni

  • Skipulögð vinnubrögð

  • Starfsreynsla er kostur

  • Jákvætt og hlýtt viðmót

  • Góð íslenskukunnátta bæði í ræðu og riti

  • Góð enskukunnátta er skilyrði

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Starfsmannafélag Suðurnesja hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og/eða umsögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSS við ráðningar á stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað um leið og ráðið hefur verið í starfið. Umsókn gildir í 6 mánuði.

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 26.03.2026

Nánari upplýsingar veitir

Eva Hlín Haraldsdóttir

Tölvupóstur: eva.h.haraldsdottir@hss.is

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Suður­nesja

Upplýsingar um starf

Starf

Sumarafleysing - Móttökuritari

Staðsetning

Suðurnes

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

16.03.2026

Umsóknarfrestur

26.03.2026