Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Lektor í vélaverkfræði

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

17.03.2026

Umsóknarfrestur

14.04.2026

Lektor í vélaverkfræði

Laust er til umsóknar fullt starf lektors í vélaverkfræði við Iðnaðarverkfræði, vélaverkfræði og tölvunarfræðideild á Verkfræði- og náttúruvísindasviði Háskóla Íslands.

Samkvæmt reglum Háskóla Íslands skiptast starfsskyldur kennara í þrjá meginþætti: rannsóknir, kennslu og stjórnun.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Rannsóknir og kennsla í vélaverkfræði, með áherslu á verkfræðilega hönnun, nýsköpun og raf- og vélræn kerfi (e. mechatronics).

  • Leiðbeining lokaverkefna grunn- og framhaldsnema

  • Þróun náms og kennslu á fagsviðinu, sérstaklega á sviði hönnunaraðferða, vöruþróunar og nýsköpunar, raf- og vélrænna kerfa

  • Stjórnun, svo sem í formi setu í nefndum

  • Kynningar á náminu

Hæfniskröfur

  • Doktorspróf í vélaverkfræði

  • Rannsóknavirkni á sviði vélaverkfræði

  • Kennslureynsla á háskólastigi

  • Reynsla af skipulagningu námskeiða, verklegrar kennslu og leiðbeiningu lokaverkefna á háskólastigi er æskileg

  • Reynsla á einu eða fleiri af eftirfarandi sviðum er æskileg:

    • Verkfræðileg hönnun og vöruþróun

    • Frumgerðasmíði, nýsköpun og samþætting kerfa

    • Raf- og vélrænum kerfum

  • Góð samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum

  • Sjálfstæð vinnubrögð og hæfni til að miðla þekkingu

  • Góð enskukunnátta, bæði rituðu og töluðu máli

  • Reynsla af þátttöku í alþjóðlegum rannsóknaverkefnum er kostur

  • Hæfni til kennslu á íslensku er kostur. Gerð er krafa um að innan fjögurra ára frá ráðningu hafi B1-stigi verið náð. Háskóli Íslands býður upp á aðstoð við að öðlast nauðsynlega tungumálafærni.

Við ráðningu verður tekið mið af því að sá er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum Iðnaðarverkfræði, vélaverkfræði og tölvunarfræðideildar.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.

Gert er ráð fyrir að starfið hefjist 4. ágúst 2026 eða eftir samkomulagi.

Ráðið verður í starfið til fimm ára, með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum, sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.

Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009.

Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókn sinni:

  1. Kynningarbréf þar sem m.a. kemur fram hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur

  2. Prófskírteini eða eftir atvikum vottorð um námsferil

  3. Akademíska ferilskrá (Curriculum Vitae)

  4. Ritaskrá

  5. Skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið

  6. Greinargerð um rannsóknar- og kennsluáform ef til ráðningar kemur

  7. Upplýsingar um mögulega umsagnaraðila sem hafa má samband við

Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skal umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Umsóknargögnum sem ekki er hægt að skila rafrænt skal skila í tvíriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík.

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.

Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt á 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.

Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.

Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 14.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Ingibjörg Óðinsdóttir

Mannauðsstjóri

Tölvupóstur: ingaodins@hi.is

Rúnar Unnþórsson

Deildarforseti

Tölvupóstur: runson@hi.is

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Lektor í vélaverkfræði

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

17.03.2026

Umsóknarfrestur

14.04.2026