Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Doktorsnemar í reikniverkfræði

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

20.03.2026

Umsóknarfrestur

30.04.2026

Doktorsnemar í reikniverkfræði

Laus eru til umsóknar þrjú full störf doktorsnema við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands. Störfin eru á sviði gagnavísinda og gervigreindar (AI), með áherslu á notkun tölva sem hafa afar mikið reikniafl (HPC). Störfin eru styrkt til þriggja ára og fela í sér náið samstarf á milli Háskóla Íslands, Veðurstofu Íslands, Jülich ofurtölvusetrið (Forschungszentrum Jülich) í Þýskalandi og annarra alþjóðlegra stofnana og fyrirtækja á þessu sviði. Doktorsneminn verður undir handleiðslu að minnsta kosti þriggja akademískra starfsmanna HÍ sem hafa mikla reynslu af rannsóknum og samfélagsáhrifum HPC og gervigreindar, þar á meðal sérfræðinga í notendasviðum (t.d. fjarkönnun, jarðeðlisfræði, eldfjallafræði, stór tungumálalíkön og tölvuvinnslu tungumála).

Á undanförnum árum hafa orðið miklar breytingar í gervigreind, byggðar á djúpnámi (deep learning), þar sem farið hefur verið frá þröngum, sértækum líkönum yfir í svokölluð grunnlíkön (foundation models) sem eru almennari og ætluð til að læra vítt og yfirfæra þekkingu á milli sviða. Þessi líkön eru forþjálfuð á ofurtölvum með miklu magni af misleitum, oft ómerktum gögnum og notast við sjálfbeint nám (self-supervised learning). Doktorsneminn mun rannsaka skölunarlögmál (scaling laws), þ.e. hvernig aukning á stærð líkans, magni gagna og reiknigetu hefur áhrif á náms- og ályktunarhæfni. Rannsóknin nýtir nýjustu EuroHPC ofurtölvurnar til að þróa og meta fjölþátta grunnlíkön (multimodal foundation models) til að leysa flókin raunveruleg vandamál.

Doktorsneminn verður virkur þátttakandi í einni af Hermi- og gagnstofunum sem eru starfandi í íslenska HPC-samfélaginu. Doktorsneminn mun vinna náið með öðrum doktorsnemum við Verkfræði- og náttúruvísindasvið HÍ, alþjóðlegum rannsóknarhóp verkefnisins og öðrum evrópskum samstarfsaðilum (verkefni á vegum Evrópusambandsins, sprotafyrirtækjum, nýsköpunarfyrirtækjum, atvinnulífi og opinberum stofnunum) til að koma frumgerðum úr gervigreindarrannsóknum á þjónustu á framleiðslustigi sem keyrir á nútíma HPC- og skýjainnviðum.

Doktorsnemanum verður veittur aðgangur að fremstu EuroHPC kerfunum (t.d. JUPITER, LUMI, LEONARDO). Það gerir honum kleift að verða virkur þátttakandi í víðara vistkerfi EU AI Factory verkefna, þar á meðal European Digital Innovation Hub of Iceland (EDIH-IS), EuroCC3 Icelandic National Competence Centre for HPC (NCC Iceland for HPC) og AI Factory Antenna of Iceland (AIFA-ICE, betur þekkt sem Glóð á Íslandi).

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Hanna, þróa og þjálfa stór grunnlíkön (t.d. Vision Transformers) á miklu magni af ómerktum gögnum.

  • Beita háþróuðum námsaðferðum með sjálfvirku eftirliti, svo sem hulinni sjálfvirkri kóðun, til að nýta umfremd á gögnum og bæta yfirfærslugetu líkans.

  • Nýta dreift reikniumhverfi af stórum skala, þar á meðal "exascale HPC" og aðrar ofurtölvur, til að þjálfa líkön á raunhæfum tíma.

  • Taka þátt í alþjóðlegum evrópskum rannsóknarverkefnum tengdum gervigreind og afar öflugu reikniumhverfi (HPC).

  • Taka þátt í og leggja sitt af mörkum til fræðslu og námskeiða, hackathona og doktorsnámsbúða fyrir rannsakendur með fjölbreyttan bakgrunn.

  • Aðstoða við gerð framvinduskýrslna um þróun verkefnisins.

  • Kynna rannsóknarniðurstöður fyrir hagsmunaaðilum og vísindasamfélaginu á fundum, ráðstefnum og í ritrýndum tímaritum.

  • Vinna með samstarfsaðilum úr sprotafyrirtækjum, nýsköpunarfyrirtækjum og opinbera geiranum ásamt því að veita þessum aðilum ráðgjöf um lykilniðurstöður, tækni og aðferðir með kynslóðargervigreind (e. generative AI).

Hæfniskröfur

  • Meistaragráða í reikniverkfræði, tölvunarfræði, gagnavísindum, hagnýttri stærðfræði eða skyldum greinum. Umsækjandi þarf að hafa lokið meistaragráðunni áður en doktorsnám hefst.

  • Bakgrunnur í djúpnámi, einkum hvað varðar Transformers og Convolutional Neural Networks (CNNs).

  • Góð kunnátta í forritun á Python og þekking á ramma djúpnáms.

  • Reynsla af vinnu í alþjóðlegu rannsóknarumhverfi.

  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum.

  • Góð enskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli.

  • Reynsla af samsíðareiknum (parallel computing) eins og HPC-kerfum eða skýjalausnum er kostur.

Ráðning er háð því að umsækjandi sæki formlega um doktorsnám við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands og að umsóknin sé samþykkt af deild.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Starfið hefst ekki seinna en 1. september 2026.

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:

  • Kynningarbréf þar sem fjallað er um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins

  • Ferilskrá (þar sem fram kemur fyrri starfsreynsla, forritunarkunnátta og ritaskrá ef við á)

  • Afrit af prófskírteinum (BS og MS), og yfirlit yfir námskeið og einkunnir (á ensku)

  • Yfirlýsing um rannsóknaráhuga (ein blaðsíða)

  • Upplýsingar um tvo umsagnaraðila (ásamt tengslum þeirra við umsækjanda)

  • TOEFL/IELTS eða sambærilegar prófaniðurstöður

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.

Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.

Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.

Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 30.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Morris Riedel

Prófessor

Tölvupóstur: morris@hi.is

Gabriele Cavallaro

Dósent

Tölvupóstur: gcavallaro@hi.is

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Doktorsnemar í reikniverkfræði

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

20.03.2026

Umsóknarfrestur

30.04.2026