Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Sýslu­mað­urinn á Norður­landi eystra

Upplýsingar um starf

Starf

Sumarstarf - Akureyri

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

16.03.2026

Umsóknarfrestur

26.03.2026

Sumarstarf - Akureyri

Fjölbreytt sumarstarf fyrir háskólanema er laust til umsóknar hjá sýslumanninum á Norðurlandi eystra, á starfsstöð embættisins á Akureyri.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Afgreiðsla vegabréfaumsókna

  • Upplýsingagjöf og afgreiðsla ökuskírteina

  • Aðstoð við ýmis verkefni málaflokka

  • Móttaka erinda og úrvinnsla

  • Símsvörun

Hæfniskröfur

  • Háskólanemi

  • Vandvirkni og ögun í vinnubrögðum og skipulagsfærni

  • Mjög gott frumkvæði og þjónustulund

  • Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum

  • Góð íslensku- og enskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf um miðjan maí.

Embætti sýslumannsins á Norðurlandi eystra leggur áherslu á góða þjónustu og öfluga liðsheild og mjög góðan starfsanda. Tekin hefur verið upp 36 stunda vinnuvika.

Með umsókn um starfið skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá ásamt upplýsingum um meðmælendur, auk annarra atriða sem máli skipta. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Tekið er fram að umsóknir geta gilt í 6 mánuði, sbr. reglur nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa. Allir einstaklingar óháð kyni eru hvattir til að sækja um starfið.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 26.03.2026

Nánari upplýsingar veitir

Eydís Eyjólfsdóttir

skrifstofustjóri

Tölvupóstur: eydis.eyjolfsdottir@syslumenn.is

Sími: 4582600

Þjónustuaðili

Sýslu­mað­urinn á Norður­landi eystra

Upplýsingar um starf

Starf

Sumarstarf - Akureyri

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

16.03.2026

Umsóknarfrestur

26.03.2026