Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Fangels­is­mála­stofnun

Upplýsingar um starf

Starf

Sumarstarf - Aðstoðarmaður í mötuneytið á Litla Hrauni

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

70%

Starf skráð

18.03.2026

Umsóknarfrestur

30.03.2026

Sumarstarf - Aðstoðarmaður í mötuneytið á Litla Hrauni

Fangelsismálastofnun óskar eftir að ráða í eina stöðu aðstoðarmanns í mötuneyti í fangelsinu Litla-Hrauni sumarið 2026.

Starfið hentar t.d. nemendum í matreiðslu eða kokkanámi sem hafa áhuga á að læra, sýna frumkvæði og leggja metnað í góða þjónustu og vandaðan mat.

Mötuneytið er bæði fyrir starfsfólk og skjólstæðinga á Litla Hrauni og Hólmsheiði. Um er að ræða 70% starf, sem unnið er í vaktavinnu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Aðstoðar við undirbúning og matseld samkvæmt fyrirmælum matráðs eða yfirmanns mötuneytis.

  • Fylgir verklagi og reglum um hollustuhætti og matvælaöryggi.

  • Sér um dagleg þrif í eldhúsi og matsal starfsmanna og uppvask og frágang í eldhúsi.

  • Tekur þátt í móttöku og frágangi matvæla og birgða.

  • Þátttaka í pökkun, afhendingu máltíða og sendingum til Hólmsheiðar.

  • Sinnir matseld eða framreiðslu undir leiðsögn yfirmanns mötuneytis eða matráðs.

  • Tekur þátt í eftirliti með skjólstæðingum í samráði við yfirmann mötuneytis og matráð.

  • Sinnir öðrum verkefnum mötuneytis samkvæmt fyrirmælum yfirmanns mötuneytis.

  • Akstur með máltíðir til Hólmsheiðar um helgar.

Hæfniskröfur

Menntunar og hæfniskröfur

  • Grunnnám í matvæla- eða þjónustugreinum er kostur.

  • Reynsla af vinnu í mötuneyti eða eldhúsi.

  • Ökuréttindi.

Persónulegir eiginleikar:

  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum og samstarfi.

  • Færni til að fylgja verklagsreglum og gæðakröfum.

  • Nákvæmi, hreinlæti og ábyrgð í störfum.

  • Vilji til að tileinka sér ný vinnubrögð og taka þátt í umbótum í þjónustu og gæðum.

  • Góð íslenskukunnátta.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Báran, stéttarfélag hafa gert.

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og SGS hafa gert.

Vinnutími er frá 07:45-14:30 og um er að ræða vaktavinnu og unnið er eftir 2-2-3 vaktafyrirkomulagi.

Athygli skal vakin á því að áður en að ráðningu kemur skal umsækjandi, að fengnu samþykki hans, undirgangast bakgrunnsskoðun skv. 10.gr. laga nr. 15/2016 um fullnustu refsinga.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfshlutfall er 70%

Umsóknarfrestur er til og með 30.03.2026

Nánari upplýsingar veitir

Sævar Birnir Steinarsson

Sími: 8684278

Þjónustuaðili

Fangels­is­mála­stofnun

Upplýsingar um starf

Starf

Sumarstarf - Aðstoðarmaður í mötuneytið á Litla Hrauni

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

70%

Starf skráð

18.03.2026

Umsóknarfrestur

30.03.2026