
Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Aðjúnkt á sviði félagsráðgjafar og velferðarþjónustu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
50%
Starf skráð
26.03.2026
Umsóknarfrestur
07.04.2026
Aðjúnkt á sviði félagsráðgjafar og velferðarþjónustu
Laust er til umsóknar 50% starf aðjúnkts við Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands. Starfsskyldur aðjúnktsins skiptast í 65% kennslu, 31% rannsóknir og 4% stjórnun.
Helstu verkefni og ábyrgð
Kennsla í grunnnámi í félagsráðgjöf
Rannsóknir á sérsviði viðkomandi
Leiðbeining nemenda við gerð lokaverkefna
Stjórnun t.d. í formi nefndarsetu innan deildar
Hæfniskröfur
Meistarapróf í félagsráðgjöf
Doktorspróf er æskilegt
Starfsréttindi í félagsráðgjöf á Íslandi
Starfsreynsla á sviði félagsráðgjafar eða velferðarþjónustu
Reynsla af kennslu á háskólastigi er æskileg
Hæfni í mannlegum samskiptum, áreiðanleiki, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum ásamt góðri hæfni til að miðla þekkingu.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
Ferilskrá
Kynningarbréf þar sem fjallað er um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins
Afrit af prófskírteinum
Upplýsingar um umsagnaraðila
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.
Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.
Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi. 36 stunda vinnuvika hefur verið innleidd í stjórnsýslustörfum skólans.
Starfshlutfall er 50%
Umsóknarfrestur er til og með 07.04.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Aðjúnkt á sviði félagsráðgjafar og velferðarþjónustu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
50%
Starf skráð
26.03.2026
Umsóknarfrestur
07.04.2026