Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Lektor í íslensku og málvísindum

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

20.03.2026

Umsóknarfrestur

17.04.2026

Lektor í íslensku og málvísindum

Laust er til umsóknar fullt starf lektors í kennslu íslensku með áherslu á málfræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Meginviðfangsefni lektorsins verða kennsla og rannsóknir á sviði íslensks máls og málnotkunar, með áherslu á málfræði og málfræðikennslu, í kennaramenntun fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla. Einnig er þess er vænst að viðkomandi taki virkan þátt í þróun kennaramenntunar og fjölbreyttra kennsluhátta á háskólastiginu. Lögð er áhersla á þverfaglega samvinnu við annað fræðafólk innan háskólans og samstarf við fagvettvang.

Samkvæmt reglum Háskóla Íslands skiptast starfsskyldur kennara í þrjá meginþætti: rannsóknir, kennslu og stjórnun.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Kennsla í íslensku máli, töluðu og rituðu, málnotkun, málfræði og kennslu íslensku sem annars máls fyrir nemendur í kennaranámi á grunn- og framhaldsstigi

  • Rannsóknir á sviði íslensks máls og málnotkunar, íslenskrar málfræði og málfræðikennslu í skólum

  • Leiðsögn með lokaverkefnum grunn-, meistara- og doktorsnema

  • Þátttaka í stjórnun námsbrautar og þróun námsleiða á sviði íslensku og íslenskukennslu á Menntavísindasviði

Hæfniskröfur

  • Doktorspróf með áherslu á áherslu á íslenska málfræði og/eða málfræðikennslu

  • Reynsla af háskólakennslu í íslenskri málfræði og/eða málfræðikennslu er æskileg

  • Reynsla af rannsóknum á sviði íslenskrar málfræði eða málfræðikennslu

  • Reynsla af kennslu íslensku á öðrum skólastigum, grunnskóla og/eða framhaldsskóla er æskileg

  • Reynsla af þátttöku í alþjóðlegu samstarfi er kostur

  • Samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum

  • Góð færni í íslensku og ensku, í ræðu og riti

Við ráðningu verður horft til þess að sá sem starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum deildar og sviðs.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.

Gert er ráð fyrir að viðkomandi hefji störf sem fyrst eftir að þær nefndir sem um málið fjalla hafa lokið störfum eða eftir nánara samkomulagi.

Ráðið verður í starfið til fimm ára, með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.

Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009.

Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókn sinni:

  1. Kynningarbréf þar sem m.a. kemur fram hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur

  2. Prófskírteini eða eftir atvikum vottorð um námsferil

  3. Akademíska ferilskrá (Curriculum Vitae)

  4. Ritaskrá

  5. Skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið

  6. Greinargerð um rannsóknar- og kennsluáform ef til ráðningar kemur

  7. Upplýsingar um mögulega umsagnaraðila sem hafa má samband við

Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins.

Umsóknargögnum sem ekki er hægt að skila rafrænt skal skila í tvíriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík.

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.

Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt á 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.

Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.

Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 17.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Elsa Eiríksdóttir

Tölvupóstur: elsae@hi.is

Sími: 525 5926

Lára Rún Sigurvinsdóttir

Tölvupóstur: lararun@hi.is

Sími: 525 5536

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Lektor í íslensku og málvísindum

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

20.03.2026

Umsóknarfrestur

17.04.2026