Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Verkefnisstjóri Félagsráðgjafar háskólanema

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50%

Starf skráð

26.03.2026

Umsóknarfrestur

07.04.2026

Verkefnisstjóri Félagsráðgjafar háskólanema

Laust er til umsóknar 50% starf verkefnisstjóra við Félagsráðgjöf háskólanema á vegum Félagsráðgjafardeildar.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ábyrgð á skipulagningu Félagsráðgjafar háskólanema

  • Fagleg ábyrgð á þjónustu við þá sem til ráðgjafarinnar leita

  • Umsjón með daglegum rekstri Félagsráðgjafar háskólanema

  • Þjálfun nemenda, t.d. kennsla í viðtalstækni og handleiðsla nemenda

Hæfniskröfur

  • Meistarapróf í félagsráðgjöf

  • Starfsréttindi í félagsráðgjöf á Íslandi

  • Starfsreynsla á sviði félagsráðgjafar, með áherslu á klíníska vinnu

  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

  • Hæfni í mannlegum samskiptum og áreiðanleiki

  • Hæfni til að miðla þekkingu

  • Reynsla og hæfni í kennslu á háskólastigi er æskileg

  • Nám eða reynsla af faglegri handleiðslu er kostur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:

  • Ferilskrá

  • Kynningarbréf þar sem fjallað er um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins

  • Afrit af prófskírteinum

  • Upplýsingar um umsagnaraðila

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.

Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.

Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi. 36 stunda vinnuvika hefur verið innleidd í stjórnsýslustörfum skólans.

Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir

Starfshlutfall er 50%

Umsóknarfrestur er til og með 07.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Hervör Alma Árnadóttir

deildarforseti

Tölvupóstur: hervora@hi.is

Sími: 525-4081

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Verkefnisstjóri Félagsráðgjafar háskólanema

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50%

Starf skráð

26.03.2026

Umsóknarfrestur

07.04.2026