
Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarstarf Hjúkrunarfræðingar - Upplýsingamiðstöð HH
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
20-100%
Starf skráð
12.03.2026
Umsóknarfrestur
23.03.2026
Sumarstarf Hjúkrunarfræðingar - Upplýsingamiðstöð HH
Upplýsingamiðstöð HH er að leita að metnaðarfullum hjúkrunarfræðingum sem vilja takast á við spennandi, fjölbreytt og krefjandi verkefni í sumar. Um er að ræða tímabundin störf í breytilegu starfshlutfalli á öllum tímum sólarhringsins og er vinnufyrirkomulag samkomulagsatriði. Ráðningartímabilið er sveigjanlegt og getur verið allt frá 6 vikum upp í 3 mánuði.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. maí nk. eða eftir nánara samkomulagi.
Allar nánari upplýsingar má finna inni á www.heilsugaeslan.is.
Helstu verkefni og ábyrgð
Veita símaráðgjöf og forflokka erindi til heilsugæslustöðva
Sinna ferðamannaheilsuvernd
Önnur þróunarverkefni í fjarheilbrigðisþjónustu innan heilsugæslunnar
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Sjálfstæði í starfi, skipulagningarhæfni og öguð vinnubrögð
Reynsla af heilsugæslu er æskileg
Reynsla af störfum á heilbrigðisstofnun á landsbyggðinni er kostur
Mikill sveigjanleiki og samskiptahæfni
Geta til að vinna undir álagi
Íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti skilyrði
Góð tölvukunnátta skilyrði
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast katli Berg Magnússyni. framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir hreinu sakavottorði.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 20-100%
Umsóknarfrestur er til og með 23.03.2026
Nánari upplýsingar veitir
Ingibjörg Rós Kjartansdóttir
Tölvupóstur: ingibjorg.ros.kjartansdottir@heilsugaeslan.is
Sími: 513-6400

Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarstarf Hjúkrunarfræðingar - Upplýsingamiðstöð HH
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
20-100%
Starf skráð
12.03.2026
Umsóknarfrestur
23.03.2026