Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur í meltingarteymi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

13.03.2026

Umsóknarfrestur

25.03.2026

Hjúkrunarfræðingur í meltingarteymi

Laust er til umsóknar starf hjúkrunarfræðings í meltingarteymi Landspítala sem staðsett er á almennri göngudeild 10E við Hringbraut.

Í meltingarteyminu starfar öflugur hópur fagfólks sem vinnur af miklum áhuga við að efla og þróa þjónustu við sjúklinga með langvinna meltingarsjúkdóma. Teymið sinnir sjúklingum með IBD, næringarslöngu/ hnappa, skorpulifur og aðra meltingarfærasjúkdóma. Þá er hluti starfseminnar á innrennslismóttöku, þar sem gefin eru ýmis lyf og vökvar í æð m.a. líftæknilyf. Einnig fara þar fram rannsóknir á meltingarvegi t.d öndunarpróf. Starfið er því afar fjölbreytt og krefjandi og gefur mikla möguleika til starfsþróunar_._ Á deildinni er markvisst unnið að umbótum og framþróun og einkennist vinnuandinn af samvinnu, metnaði og góðum liðsanda.

Hér er tækifæri fyrir framsækinn og metnaðarfullan hjúkrunarfræðing sem hefur áhuga á að vinna í teymi en einnig sjálfstætt og af frumkvæði. Í boði er einstaklingsmiðuð aðlögun undir leiðsögn reyndra hjúkrunarfræðinga. Starfshlutfall er 80-100% dagvinna og er starfið laust nú þegar eða eftir nánara samkomulagi.

Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Einstaklingsmiðuð hjúkrunarmeðferð og heildstæð þjónusta við sjúklinga með sjúkdóma í meltingarfærum

  • Þátttaka í teymisvinnu í greiningarferli, við meðferð og eftirfylgd sjúklinga í gegnum sjúkdómsferlið

  • Lyfjagjafir líftæknilyfja og stuðningur við sjúklinga með sjúkdóma í meltingarfærum

  • Þróun ferla og nýrra verkefna á göngudeild meltingarsjúklinga

  • Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu innan deildar og í samvinnu við legudeildir sérgreina

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Faglegur metnaður og sjálfstæði í starfi

  • Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar

  • Áhugi á að starfa í krefjandi og fjölbreyttu umhverfi

  • Góð íslenskukunnátta áskilin

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, Hjúkrun, teymisvinna

Tungumálahæfni: íslenska 3/5

Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 25.03.2026

Nánari upplýsingar veitir

Ingibjörg Magnúsdóttir

Tölvupóstur: ingibjma@landspitali.is

Sími: 820-2655

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur í meltingarteymi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

13.03.2026

Umsóknarfrestur

25.03.2026