Þjónustuaðili
Fangelsismálastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Embætti varðstjóra hjá Fangelsismálastofnun ¿ Fangelsið Litla-Hraun
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
17.03.2026
Umsóknarfrestur
31.03.2026
Embætti varðstjóra hjá Fangelsismálastofnun ¿ Fangelsið Litla-Hraun
Hjá Fangelsismálastofnun eru lausar til umsóknar tvær stöður varðstjóra við Fangelsið Litla-Hraun. Um er að ræða annars vegar almenna varðstjórastöðu á vöktum og hins vegar varðstjórastöðu á dagvöktum í öryggisálmu fangelsisins. Gert er ráð fyrir því að forstjóri Fangelsismálastofnunar skipi í embættin til fimm ára frá og með 1. júní 2026.
Um ný embætti er að ræða sem er liður í umbótum og endurskipulagningu á starfsstigum innan fangelsanna. Sá sem hlýtur skipun í embætti mun þurfa að sækja stjórnunarnámskeið á vegum Fangelsismálastofnunar eða námskeið sem stofnunin ákveður að millistjórnendur þurfi að sækja.
Helstu upplýsingar um vinnustaðinn og starfið
Fangelsismálastofnun heyrir undir dómsmálaráðuneytið. Stofnunin fer með yfirstjórn fangelsismála, m.a. umsjón með rekstri fangelsa og tryggir að fullnusta refsinga fari fram með öruggum og skilvirkum hætti í samræmi við lög um fullnustu refsinga nr. 15/2016. Stofnunin leggur áherslu á vellíðan í starfi og jákvæðan starfsanda. Hjá stofnuninni starfa alls um 160 starfsmenn, flestir fangaverðir, á fimm mismunandi starfsstöðvum, fjórum fangelsum og skrifstofu.
Í Fangelsinu Litla-Hrauni starfa um 70 starfsmenn, flestir fangaverðir. Næsti yfirmaður varðstjóra er aðalvarðstjóri við Fangelsið Litla-Hraun.
Helstu verkefni og ábyrgð
Samkvæmt innri reglum um starfsstig innan fangelsa gegnir varðstjóri hlutverki millistjórnanda sem styður við aðalvarðstjóra og gegnir hlutverki staðgengils við fjarveru, eftir því sem við á.
Meginverksvið og ábyrgð varðstjóra eru:
Aðstoðar aðalvarðstjóra við daglega vaktstjórn.
Tryggir að farið sé eftir verklagi og öryggisreglum.
Vinnur með fangavörðum og veitir þeim leiðsögn.
Sinnir daglegum samskiptum og aðstoðar fanga.
Tekur við vaktstjórn þegar aðalvarðstjóri er ekki viðstaddur.
Tekur þátt í þjálfun og fræðslu er viðkemur starfinu.
Sér um að skráningar og skýrslugerð sé með fullnægjandi hætti.
Sinnir stjórnendaeftirliti með lægri starfsstigum.
Hæfniskröfur
Hæfi
Til að hljóta skipun í embætti fangavarðar þarf viðkomandi að hafa lokið námi í fangavarðafræðum samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga um fullnustu refsinga. Leggja má að jöfnu sambærilegt nám sem viðurkennt er af Fangelsismálastofnun að fenginni umsögn stjórnar Fangavarðafélags Íslands. Samkvæmt 2. mgr. 15. gr. innri reglna um starfsstig innan fangelsa skal umsækjandi enn fremur hafa starfað í fangelsi í að minnsta kosti eitt ár til að hljóta skipun í starf varðstjóra.
Hæfniskröfur
Leitað er eftir einstaklingi með eftirfarandi menntun, reynslu og hæfni
Menntun
Nám í fangavarðafræðum skv. hæfiskröfum.
Viðbótarmenntun sem nýtist í starfi er kostur.
Reynsla
Starfsreynsla sem nýtist í starfi, þar á meðal stjórnunarreynsla.
Persónulegir eiginleikar/hæfni
Forystuhæfni til að leiða fólk, stjórna verkefnum og taka ákvarðanir.
Frumkvæði, drifkraftur og metnaður.
Jákvætt, lausnamiðað og umbótasinnað hugarfar.
Mjög góð samskiptafærni og vilji til þess að vinna með fólki.
Góð skipulagsfærni og nákvæmni í vinnubrögðum.
Góð færni í íslensku og ensku í ræðu og riti.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Sá sem skipaður er í embættið nýtur réttinda og ber skyldur skv. lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Fangelsismálastofnunar við ráðningar. Fangelsismálastofnun hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt Jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012.
Umsóknum skal skilað inn á vef Starfatorgs. Með umsókn skal fylgja starfsferilskrá, afrit af prófskírteinum og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist til að sinna starfinu í samræmi við þær hæfniskröfur sem fram koma í auglýsingu.
Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Athygli skal vakin á því að áður en að skipun varðstjóra kemur skal umsækjandi, að fengnu samþykki hans, undirgangast bakgrunnsskoðun skv. 10. gr. laga um fullnustu refsinga. Í því felst upplýsingaöflun aftur í tímann m.a. úr sakaskrá og skrám lögreglu.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 31.03.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Fangelsismálastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Embætti varðstjóra hjá Fangelsismálastofnun ¿ Fangelsið Litla-Hraun
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
17.03.2026
Umsóknarfrestur
31.03.2026