
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingar á geðgjörgæslu 32C
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
24.03.2026
Umsóknarfrestur
07.04.2026
Hjúkrunarfræðingar á geðgjörgæslu 32C
Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa á geðgjörgæsludeild Landspítala við Hringbraut. Við leitum eftir hjúkrunarfræðingum sem hafa áhuga á geðgjörgæsluhjúkrun. Á geðgjörgæslu er veitt sérhæfð þjónusta í meðferð og umönnun einstaklinga með bráð geðræn einkenni. Gagnreynd þekking, viðurkenndir verkferlar og hugmyndafræði um geðgjörgæslu eru í fyrirrúmi.
Á deildinni starfa um 50 einstaklingar í þverfaglegu meðferðarteymi. Vinnuandinn einkennist af samvinnu, lipurð, stuðningi, metnaði og góðum liðsanda. Tækifæri til sérhæfingar eru mörg og því spennandi vettvangur fyrir hjúkrunarfræðinga sem hafa áhuga á að dýpka þekkingu sína í geðhjúkrun.
Boðið verður upp á einstaklingshæfða aðlögun undir leiðsögn reyndra hjúkrunarfræðinga. Landspítali styður nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga í starfi með markvissri handleiðslu og fræðslu .
Upphafstími ráðningar er frá 1. maí 2026 eða skv. samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Veita einstaklingshæfða hjúkrunarmeðferð, ráðgjöf og stuðning til einstaklinga og aðstandenda þeirra
Yfirsýn, skipulagning og forgangsröðun varðandi meðferðir og öryggisþætti á deild
Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
Hvatning, leiðbeining og víðtækur stuðningur við nema og annað samstarfsfólk
Virk þátttaka í umbótastarfi og þróun hjúkrunar á deild
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Sérnám og/eða reynsla af geðhjúkrun er kostur
Áhugi á hjúkrun fólks með alvarleg geðræn einkenni
Framúrskarandi samskiptahæfni, sveigjanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum
Frumkvæði og faglegur metnaður
Áhugi á þverfaglegu samstarfi og teymisvinnu
Góð almenn tölvukunnátta
Góð íslenskukunnátta, bæði í mæltu og rituðu máli
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, Hjúkrun
Tungumálahæfni: íslenska 4/5
Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 07.04.2026
Nánari upplýsingar veitir
Jóhanna Guðmunda Þórisdóttir
Tölvupóstur: johathor@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingar á geðgjörgæslu 32C
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
24.03.2026
Umsóknarfrestur
07.04.2026