Þjónustuaðili
Menntaskólinn að Laugarvatni
Upplýsingar um starf
Starf
Raunvísindakennari við Menntaskólann að Laugarvatni skólaárið 2026-2027
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
12.03.2026
Umsóknarfrestur
23.03.2026
Raunvísindakennari við Menntaskólann að Laugarvatni skólaárið 2026-2027
Menntaskólinn að Laugarvatni óskar eftir að ráða kennara í efnafræði, eðlisfræði og stærðfræði á þriðja þrepi til eins árs. Menntaskólinn að Laugarvatni er framhaldsskóli sem byggir á bekkjakerfi. Boðið er upp á nám til stúdentsprófs á bóknámsbrautum; náttúruvísindabraut og félags- og hugvísindabraut. Áhugasömum um starfið er einnig bent á að kynna sér vel þær stefnur og áætlanir sem skólinn hefur sett sér varðandi jafnréttismál, EKKO mál og fleira en starfsfólk skólans skal vinna í takti við þær áherslur.
Helstu verkefni og ábyrgð
Kennsla í áföngum í efnafræði, eðlisfræði og stærðfræði skv. áfangalýsingum fagstjóra. Kennarinn ber ábyrgð á kennslu, undirbúningi og námsmati í viðkomandi faggrein og tekur þátt í faglegu samstarfi kennara og starfsfólks við skólann. Athygli er vakin á því að skólinn hefur yfir að ráða nýuppgerða efnafræðistofu sem er öll hin glæsilegasta.
Hæfniskröfur
Umsækjendur skulu hafa réttindi til að nota starfsheitið kennari og vera með sérhæfingu í viðkomandi faggrein til að kenna á 2.-4. hæfnisþrepi.
Umsækjandi skal:
Uppfylla kröfur um menntun og hæfni skv. lögum nr. 95/2019
Hafa metnað, frumkvæði, öguð vinnubrögð og jákvætt hugarfar að leiðarljósi í starfi
Búa yfir samskiptafærni, þjónustulund og hæfni til að starfa með öðrum sem og að vinna sjálfstætt
Góð tölvukunnátta og þekking á upplýsingatækni er nauðsynleg, til að mynda þekking og kunnátta í kennslukerfum og Office365
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.
Umsóknum skal skilað í gegnum Starfatorg, www.starfatorg.is. Náms- og starfsferilsskrá skal fylgja innsendri umsókn ásamt þeim gögnum í viðhengi sem umsækjendur telja skipta máli í ráðningarferlinu, t.d. afrit af prófskírteinum og leyfisbréfi (staðfesting á menntun og starfsréttindum). Kynningarbréf skal fylgja umsókn. Umsækjendur þurfa að hafa hreina sakaskrá.
Ráðið er í starfið frá og með 1. ágúst 2026 og er ráðning til eins árs.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 23.03.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Menntaskólinn að Laugarvatni
Upplýsingar um starf
Starf
Raunvísindakennari við Menntaskólann að Laugarvatni skólaárið 2026-2027
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
12.03.2026
Umsóknarfrestur
23.03.2026