Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Samkeppnis­eft­ir­litið

Upplýsingar um starf

Starf

Aðalhagfræðingur Samkeppniseftirlitsins

Staðsetning

Óstaðbundið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

11.03.2026

Umsóknarfrestur

31.03.2026

Aðalhagfræðingur Samkeppniseftirlitsins

Samkeppniseftirlitið auglýsir eftir umsóknum um starf aðalhagfræðings.

Helstu verkefni og ábyrgð

Aðalhagfræðingur ber faglega ábyrgð á hagrænum rannsóknum og greiningum á vettvangi Samkeppniseftirlitsins og sér til þess að þær aðferðir sem beitt er séu vandaðar og byggi á traustum hagfræðilegum grunni. Með það að markmiði stuðlar hann að uppbyggingu og þróun hagfræðilegrar þekkingar innan eftirlitsins og veitir hagfræðingum faglega leiðsögn.

Aðalhagfræðingur er virkur þátttakandi í forgangsröðun verkefna, verkstjórn og ákvörðunum um efnislega niðurstöðu athugana. Jafnframt er hann í samskiptum og samstarfi við fræðasamfélagið, innanlands og utan, og tekur þátt í alþjóðlegu samstarfi, m.a. á vettvangi EES/ESB, OECD og norrænna eftirlita.

Hæfniskröfur

  • Meistara- eða doktorspróf í hagfræði sem nýtist í samkeppniseftirliti.

  • Framúrskarandi þekking á hagrænum aðferðum sem nýtast við rannsóknir samkeppnismála sem og markaðsgreiningum.

  • Þekking á því lagaumhverfi sem samkeppnisyfirvöld starfa við, hér á landi eða erlendis, er kostur.

  • Forystuhæfileikar og hæfni til að leiða faglega vinnu hagfræðinga.

  • Frumkvæði, gagnrýnin hugsun og nákvæm vinnubrögð.

  • Færni til að tjá sig í ræðu og riti og til þátttöku í erlendu samstarfi.

Föst búseta á höfuðborgarsvæðinu eða Íslandi er ekki skilyrði.

Ráðningarferlið

Rýnihópur verður Samkeppniseftirlitinu til ráðgjafar um nánari viðmið sem liggja til grundvallar vali á aðalhagfræðingi og gefur álit á hæfni umsækjenda.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni. Með umsókn þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Starfshlutfall 100% eða samkvæmt samkomulagi og laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðuneytisins og hlutaðeigandi stéttarfélags.

Samkeppniseftirlitið áskilur sér rétt til þess að ráða á grundvelli auglýsingarinnar næstu sex mánuði eftir birtingu hennar, sbr. reglur um auglýsingar á lausum störfum nr. 1000/2019. Við ráðningar hjá Samkeppniseftirlitinu er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun stofnunarinnar.

Auglýsingin verður einnig kynnt á erlendum vettvangi og verður tekið við umsóknum frá hagfræðingum sem ekki hafa íslensku að móðurmáli.

Um Samkeppniseftirlitið

Samkeppniseftirlitið hefur eftirlit með samkeppni fyrirtækja í síbreytilegu atvinnulífi landsins. Eftirlitið spornar við óhæfilegum hindrunum og takmörkunum á frelsi í atvinnurekstri, vinnur gegn skaðlegri fákeppni og samkeppnishömlum og auðveldar aðgang nýrra keppinauta að markaðnum.

Hjá Samkeppniseftirlitinu starfar fjölbreyttur og þverfaglegur hópur sérfræðinga sem hefur brennandi áhuga og reynslu af samkeppnismálum. Samkeppniseftirlitið leggur áherslu á að starfsmenn þess fái tækifæri til að sinna spennandi verkefnum, þróast í starfi og viðhalda jafnvægi milli vinnu og einkalífs.

Nánari upplýsingar um Samkeppniseftirlitið má finna á www.samkeppni.is

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 31.03.2026

Nánari upplýsingar veitir

Páll Gunnar Pálsson

forstjóri

Tölvupóstur: pall.g.palsson@samkeppni.is

Karítas Margrét Jónsdóttir

rekstrarstjóri

Tölvupóstur: karitas.m.jonsdottir@samkeppni.is

Þjónustuaðili

Samkeppnis­eft­ir­litið

Upplýsingar um starf

Starf

Aðalhagfræðingur Samkeppniseftirlitsins

Staðsetning

Óstaðbundið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

11.03.2026

Umsóknarfrestur

31.03.2026