Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Rannsóknalektor í reikniefnafræði

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

24.03.2026

Umsóknarfrestur

22.04.2026

Rannsóknalektor í reikniefnafræði

Laust er til umsóknar fullt starf rannsóknalektors í reikniefnafræði við efnafræðistofu innan Raunvísindastofnunar Háskólans og mun viðkomandi fá rannsóknaraðstöðu hjá Raunvísindastofnun Háskólans. Efnafræðistofa Raunvísindastofnunar er rannsóknavettvangur efnafræði við Háskóla Íslands. Þar eru stundaðar rannsóknir á fjölbreyttum sviðum efnafræði, meðal annars á sviði lífrænnar og ólífrænnar efnafræði, eðlisefnafræði og efnagreininga. Starfsfólk efnafræðistofu sinnir einnig leiðbeiningu nemenda í rannsóknatengdu námi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Rannsóknir á sviði reikniefnafræði

  • Öflun styrkja til rannsóknastarfa

  • Aðkoma að leiðbeiningu nemenda

  • Samstarf með Upplýsingatæknisviði til að tryggja það að reikniklasar IREI (Icelandic Research E-Infrastructure) sem og gagnageymsla nýtist vel þeim sem stunda rannsóknir með tölvureikningum

Hæfniskröfur

  • Doktorspróf í eðlisefnafræði eða skyldum fögum.

  • Reynsla af þróun reiknirita (algóriþma) og hugbúnaðar fyrir skammtaefnafræðireikninga.

  • Virkni og hæfni í rannsóknum á alþjóðavettvangi.

  • Góð enskukunnátta, í ræðu og riti.

  • Góð samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum.

  • Reynsla af samvinnuverkefnum og öflun styrkja til rannsóknarstarfa er æskileg.

Við ráðningu verður tekið mið af því að sá sem starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum námsbrautarinnar.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.

Gert er ráð fyrir að starfið hefjist 1. ágúst 2026 eða eftir samkomulagi.

Ráðið verður í starfið til fimm ára, með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.

Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009.

Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókn sinni:

  1. Kynningarbréf þar sem m.a. kemur fram hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur

  2. Prófskírteini eða eftir atvikum vottorð um námsferil

  3. Akademíska ferilskrá (Curriculum Vitae)

  4. Ritaskrá

  5. Skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið

  6. Greinargerð um rannsóknaráform ef til ráðningar kemur

  7. Upplýsingar um mögulega umsagnaraðila sem hafa má samband við

Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Umsóknargögnum sem ekki er hægt að skila rafrænt skal skila í tvíriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík.

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.

Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt á 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.

Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.

Um Háskóla Íslands | Háskóli Íslands

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 22.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Sigríður Guðrún Suman

Prófessor

Tölvupóstur: sgsuman@hi.is

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Rannsóknalektor í reikniefnafræði

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

24.03.2026

Umsóknarfrestur

22.04.2026