
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Æðaskurðlæknir á skurðlækninga-, skurðstofu og gjörgæsluþjónustu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
13.03.2026
Umsóknarfrestur
25.03.2026
Æðaskurðlæknir á skurðlækninga-, skurðstofu og gjörgæsluþjónustu
Laust er til umsóknar starf æðaskurðlæknis á skurðlækninga-, skurðstofu- og gjörgæsluþjónustu Landspítala. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. júlí 2026 eða eftir nánara samkomulagi. Leitað er eftir metnaðarfullum æðaskurðlækni til að annast sérhæfða meðferð og eftirfylgd við sjúklinga okkar.
Æðaskurðlæknar starfa í öflugu þverfaglegu teymi og í nánu samstarfi við aðrar fagstéttir spítalans. Áhersla er lögð á góða þjónustu, virka teymisvinnu og stöðugar umbætur í þágu sjúklinga. Við tökum vel á móti nýju samstarfsfólki og veitum góða aðlögun.
Helstu verkefni og ábyrgð
Sérfræðistörf í samráði við yfirlækni sérgreinarinnar, s.s. greining, meðferð og eftirfylgd sjúklinga með vandamál er tengjast sérgreininni
Þátttaka í göngudeildarþjónustu
Þátttaka í vöktum sérgreinarinnar
Þátttaka í kennslu og vísindavinnu í samráði við yfirlækni
Þátttaka í teymisvinnu
Hæfniskröfur
Íslenskt sérfræðileyfi í æðaskurðlækningum
Færni og virkni í slagæðaaðgerðum skilyrði
Færni og virkni í innæðaaðgerðum skilyrði
Faglegur metnaður og skipulögð vinnubrögð
Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum
Virkni í kennslu og æskileg virkni í vísindavinnu
Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Skurðlæknafélag Íslands hafa gert.
Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið sbr. grein 3.3 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins.
Starfsstöð er Landspítali og eftir atvikum önnur sjúkrastofnun sem yfirlæknir hefur sem starfsskyldu að manna.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
Fyrri störf, menntun og hæfni
Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum
Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, vísindavinnu, stjórnunarstörfum
Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed
Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið
Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sérfræðilæknir, læknir
Tungumálahæfni: íslenska 4/5
Staðsetning: Fossvogur, 108 Reykjavík
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 25.03.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Æðaskurðlæknir á skurðlækninga-, skurðstofu og gjörgæsluþjónustu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
13.03.2026
Umsóknarfrestur
25.03.2026