Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur á Göngudeild lyflækninga

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

30.03.2026

Umsóknarfrestur

09.04.2026

Hjúkrunarfræðingur á Göngudeild lyflækninga

Göngudeild lyflækninga er deild í örri þróun og markvisst er verið að vinna að eflingu göngudeildarþjónustu innan SAk

Á deildinni fer fram sérhæfð þjónusta við einstaklinga með fjölbreytt heilsufarsvandamál og starfsmenn hafa sérhæfða þekkingu á ákveðnum sviðum og taka móti einstaklingum í skipulögðu eftirliti og meðferðarviðtölum.

Á göngudeild lyflækninga eru sérhæfðar móttökur fyrir hjarta-, lungna-, innkirtla-, meltingar-, gigtar og minnissjúkdóma ásamt næringarteymi og þar starfar öflugur og samheldin hópur í samvinnu og teymisvinnu við annað fagfólk.

Nýlega hófst tilraunaverkefni á lungnamóttöku en þar er verið að nota fjarvöktun í meðferð skjólstæðinga, það er fjarheilbrigðislausn sem miðar að því að auka öryggi og samfellu í þjónustu og er þetta afar spennandi verkefni fyrir hjúkrunarfræðinga. Nýjasta móttakan er á sviði gigtar en sú innleiðing hófst í upphafi árs 2026.

Um er að ræða 40-100% ótímabundna stöðu í dagvinnu.

Staðan er laus frá 1. mai n.k. eða eftir samkomulagi.

Hér er tækifæri fyrir framsækinn og metnaðarfullan hjúkrunarfræðing sem hefur áhuga á að sinna fjölbreyttum sjúklingahóp eða sérhæfa sig í ákveðnum sjúkdómum. Vinna í teymi, sjálfstætt og af frumkvæði.

Næsti yfirmaður er Þórdís Rósa Sigurðardóttir deildarstjóri á göngudeild lyflækninga.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Að sinna skjólstæðingum sem þurfa þjónustu á göngudeild

  • Móttaka, meðferðarsamtöl og símaeftirfylgd skjólstæðinga á deildinni

  • Eftirlit og eftirfylgd með ákveðnum meðferðum og rannsóknum

  • Sinna fræðslu og ráðgjöf til skjólstæðinga

  • Teymisvinna

  • þátttaka í þróun á starfsemi og fylgjast með nýjungum

  • Þáttaka í gerð verkferla og gæðaskjala

  • Ábyrgð á öllum verkefnum hjúkrunarfræðinga samkvæmt lögum og reglugerðum

  • Önnur störf á deildinni í samráði við deildarstjóra

Hæfniskröfur

  • Gilt íslenskt starfsleyfi sem hjúkrunarfræðingur

  • Starfsreynsla á klínísku sviði er skilyrði

  • Viðbótarnám í hjúkrun einstaklinga með langvinn veikindi er kostur

  • Góð íslenskukunnátta, bæði í rituðu og mæltu máli

  • Góð tölvufærni

  • Þekking og reynsla af klínískum tölvukerfum er kostur

  • hæfni í miðlun upplýsinga og gerð fræðsluefnis er kostur

  • Lögð er áhersla á frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og hæfileika í samskiptum og samvinnu

  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.

Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.

Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 09.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Þórdís Rósa Sigurðardóttir

deildarstjóri

Tölvupóstur: trs0519@sak.is

Sími: 463-0100

Kristjana Kristjánsdóttir

Tölvupóstur: kristjanak@sak.is

Sími: 463-0100

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur á Göngudeild lyflækninga

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

30.03.2026

Umsóknarfrestur

09.04.2026