Þjónustuaðili
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Upplýsingar um starf
Starf
Lögfræðingur á skrifstofu húsnæðis- og skipulagsmála
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
13.03.2026
Umsóknarfrestur
27.03.2026
Lögfræðingur á skrifstofu húsnæðis- og skipulagsmála
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið leitar að metnaðarfullum, drífandi og reynslumiklum lögfræðingi á skrifstofu húsnæðis- og skipulagsmála. Verkefni skrifstofunnar eru m.a. húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsmál, brunavarnir, skráning og mat fasteigna.
Helstu verkefni og ábyrgð
Samning lagafrumvarpa og reglugerða.
Innleiðing EES reglna.
Meðferð kærumála.
Afgreiðsla stjórnsýsluerinda og álitsgerða.
Samskipti við önnur stjórnvöld og stofnanir.
Verkefni á málefnasviðum skrifstofunnar eftir því sem við á.
Hæfniskröfur
Fullnaðarpróf í lögfræði með embættis- eða meistaraprófi.
Að minnsta kosti 5 ára reynsla af lögfræðistörfum.
Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu og stjórnsýslurétti.
Þekking og reynsla af málefnum sveitarfélaga er kostur.
Þekking og reynsla af EES-rétti er kostur.
Reynsla af meðferð kærumála er kostur.
Þekking og reynsla af þeim málaflokkum og lögum sem heyra undir skrifstofuna er kostur.
Góð færni og kunnátta í íslensku og ensku.
Færni til að vinna sjálfstætt að greiningu og úrlausn lögfræðilegra álitaefna.
Frumkvæði, metnaður og skipulagshæfileikar.
Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins hafa gert.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins hafa gert.
Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni umsækjanda í starfið. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, reynslu og fyrri störf.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna um auglýsingar á lausum störfum nr. 1000/2019. Við ráðningar í störf hjá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu er tekið mið af jafnréttisáætlun Stjórnarráðsins. Ráðuneytið hvetur einstaklinga óháð kyni til að sækja um starfið.
Umsóknir um starfið skulu sendar á netfangið frn@frn.is.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 27.03.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Upplýsingar um starf
Starf
Lögfræðingur á skrifstofu húsnæðis- og skipulagsmála
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
13.03.2026
Umsóknarfrestur
27.03.2026