Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur - dagvinna á göngudeild húð- og kynsjúkdóma

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

60-70%

Starf skráð

11.03.2026

Umsóknarfrestur

23.03.2026

Hjúkrunarfræðingur - dagvinna á göngudeild húð- og kynsjúkdóma

Laus er til umsóknar staða hjúkrunarfræðings á göngudeild húð- og kynsjúkdóma í Fossvogi. Starfshlutfall er 60-70%, vinnutími er virka daga kl. 8-16. Starfið er laust nú þegar eða samkvæmt samkomulagi.

Um er að ræða fjölbreytt og skemmtilegt starf. Samvinna er til fyrirmyndar í 17 manna samhentum hópi hjúkrunarfræðinga, lækna, ritara og sjúkraliða. Lögð er áhersla á fagmennsku, góða samvinnu og jákvætt starfsumhverfi.

Við leggjum metnað í að taka vel á móti nýju starfsfólki og bjóðum upp á góða og einstaklingshæfða aðlögun.

Helstu verkefni og ábyrgð

Meðferð og fræðsla vegna húð- og kynsjúkdóma, meðal annars:

  • Sárameðferðir

  • Sérhæfðar meðferðir vegna frumubreytinga í húð

  • Gerð ofnæmisprófa vegna snertiofnæmis

  • Aðstoð við minniháttar aðgerðir

  • Þátttaka í þróun hjúkrunar og þverfaglegri teymisvinnu innan deildar

  • Önnur verkefni í samráði við deildarstjóra

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Jákvæðni, frumkvæði og góð samskiptahæfni

  • Hæfni og áhugi á teymis- og verkefnavinnu

  • Faglegur metnaður og sjálfstæði í starfi

  • Góð íslenskukunnátta í bæði mæltu og rituðu máli

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, teymisvinna

Tungumálahæfni: íslenska 4/5

Staðsetning: Fossvogi, 108 Reykjavík

Starfshlutfall er 60-70%

Umsóknarfrestur er til og með 23.03.2026

Nánari upplýsingar veitir

Emma Björg Magnúsdóttir

Tölvupóstur: emmabm@landspitali.is

Sími: 825-5029

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur - dagvinna á göngudeild húð- og kynsjúkdóma

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

60-70%

Starf skráð

11.03.2026

Umsóknarfrestur

23.03.2026