
Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Verkefnisstjóri rannsóknaverkefna
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
26.03.2026
Umsóknarfrestur
07.04.2026
Verkefnisstjóri rannsóknaverkefna
Laust er til umsóknar fullt starf verkefnisstjóra við rannsóknaverkefni hjá Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands. Félagsvísindastofnun er rannsókna- og fræðastofnun innan Háskóla Íslands þar sem unnið er að hagnýtum og fræðilegum rannsóknum sem miða að því að styrkja og efla íslenskt samfélag. Þar starfa á annan tug verkefnisstjóra sem sinna rannsóknum, úttektum, þjónustuverkefnum og aðferðafræðilegri ráðgjöf fyrir aðila innan og utan háskólans. Hlutverk verkefnisstjórans er að hafa yfirumsjón með rannsóknum og verkefnum á vegum stofnunarinnar, auk þess að veita sérfræðiráðgjöf og sinna fræðslu á sérsviði hans.
Helstu verkefni og ábyrgð
Verkefnisstjórn rannsókna
Hönnun rannsókna, úrvinnsla, skýrsluskrif og kynning niðurstaðna
Tilboðs- og áætlanagerð vegna nýrra verkefna
Ráðgjöf og þjónusta við viðskiptavini
Hæfniskröfur
Meistarapróf á sviði félagsvísinda (t.d. félagsfræði, mannfræði, stjórnmálafræði), sálfræði eða skyldum greinum
Reynsla og hæfni í tölfræðilegri úrvinnslu og framsetningu gagna
Reynsla af gerð viðhorfskannana er kostur
Góð kunnátta í SPSS, STATA eða R
Reynsla af skýrsluskrifum eða miðlun niðurstaðna til fjölbreytts áhorfendahóps
Frumkvæði, nákvæm vinnubrögð og góð samskiptahæfni
Góð kunnátta í íslensku og ensku, bæði í rituðu og töluðu máli
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
Ferilskrá
Kynningarbréf þar sem fjallað er um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins
Afrit af prófskírteinum
Upplýsingar um umsagnaraðila
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.
Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.
Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi. 36 stunda vinnuvika hefur verið innleidd í stjórnsýslustörfum skólans.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 07.04.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Verkefnisstjóri rannsóknaverkefna
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
26.03.2026
Umsóknarfrestur
07.04.2026