Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Barna- og fjölskyldu­stofa

Upplýsingar um starf

Starf

Sumarstörf 2026 - Ráðgjafi á meðferðarheimili hjá Barna- og fjölskyldustofu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

10.03.2026

Umsóknarfrestur

01.06.2026

Sumarstörf 2026 - Ráðgjafi á meðferðarheimili hjá Barna- og fjölskyldustofu

Vilt þú starfa sumarið 2026 sem ráðgjafi í afleysingu á meðferðarheimili hjá Barna- og fjölskyldustofu. Við leitum að ábyrgum, jákvæðum og sveigjanlegum einstaklingum í sumarafleysingar. Ráðgjafar á meðferðarheimili sinna krefjandi en afar gefandi starfi þar sem þeir veita skjólstæðingum stuðning og leiðsögn í daglegu lífi og skapa öruggt og styðjandi umhverfi fyrir þá.

Vinsamlegast skráið þá starfsstöð sem þið helst viljið starfa á í reitinn "annað" neðst á umsóknareyðublaðinu. Vekjum athygli á því að ekki öll heimilin eru staðsett á höfuðborgarsvæðinu (sjá hér að neðan). Möguleiki er á að leysa af á fleiri en einum stað. Áhugasöm eru hvött til að sækja um sem fyrst, en unnið verður úr umsóknum jafnóðum og þær berast.

Í boði er starf ráðgjafa á eftirfarandi starfsstöðvum:

Félagsleg bráðamóttaka ungmenna - Á höfuðborgarsvæðinu

Meðferðarheimilið Esja - Á höfuðborgarsvæðinu

Stuðningsheimilið Blönduhlíð - Á höfuðborgarsvæðinu

Lækjarbakki - Gunnarsholti á Suðurlandi

Meðferðarheimilið Bjargey - Laugalandsskóla í Eyjafjarðarsveit

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Einstaklingsbundinn stuðningur við skjólstæðinga í samvinnu við stjórnendur og sérfræðinga.

  • Meðferðarvinna undir handleiðslu sérfræðinga og vinna að tómstundastarfi með skjólstæðingum.

  • Samskipti við foreldra og samstarfsaðila.

  • Vinna eftir verklagsreglum og þeim gagnreyndu aðferðum sem unnið er eftir á heimilinu.

  • Umönnun, stuðningur við athafnir daglegs lífs og tryggja öryggi skjólstæðinga.

  • Almenn heimilisstörf.

  • Önnur verkefni í samráði við stjórnendur.

Hæfniskröfur

  • Reynsla og/eða menntun sem nýtist í starfi, t.d. við meðferðarstarf, öryggisgæslu, tómstunda- eða íþróttastarf.

  • Áhugi og/eða reynsla af að vinna meðferðferðarvinnu með unglingum.

  • Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum er nauðsynleg.

  • Mjög gott líkamlegt atgervi og andlegt heilbrigði.

  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulag í vinnubrögðum.

  • Sveigjanleiki og þjónustulund.

  • Góð íslenskukunnátta í mæltu og rituðu máli.

  • Gild ökuréttindi.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Við úrvinnslu umsókna um störfin gildir mat Barna- og fjölskyldustofu á hæfni og eiginleikum umsækjenda. Vakin er athygli á að stofnunin aflar sjálf upplýsinga úr sakaskrá áður en viðkomandi hefur störf. Barna- og fjölskyldustofa hvetur öll til að sækja um, óháð kyni.

Með umsóknum skulu fylgja upplýsingar um menntun og fyrri störf. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Allar umsóknir gilda í sex mánuði frá birtingu ef starf losnar að nýju innan þess tíma.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 01.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Stella Sigurðardóttir

Tölvupóstur: mannaudur@bofs.is

Sími: 5302600

Hafrún Lilja Jakobsdóttir

Tölvupóstur: mannaudur@bofs.is

Sími: 5302600

Þjónustuaðili

Barna- og fjölskyldu­stofa

Upplýsingar um starf

Starf

Sumarstörf 2026 - Ráðgjafi á meðferðarheimili hjá Barna- og fjölskyldustofu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

10.03.2026

Umsóknarfrestur

01.06.2026