Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Framhalds­skólinn á Húsavík

Upplýsingar um starf

Starf

Staða náms- og starfsráðgjafa

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

40%

Starf skráð

24.03.2026

Umsóknarfrestur

10.04.2026

Staða náms- og starfsráðgjafa

Laus er til umsóknar 40% tímabundin staða náms- og starfsráðgjafa við Framhaldsskólann á Húsavík skólaárið 2026-2027. Menntasýn Framhaldsskólans á Húsavík er að veita öllum nemendum jafnan stuðning og undirbúning undir frekara nám eða þátttöku í samfélaginu með ríku utanumhaldi og eftirfylgni með námi og líðan hvers nemanda. Þetta er gert með áherslu á leiðsagnarmat, vörðuviðtöl, umsjón og miðannarmat auk annarrar eftirfylgni.

Helstu verkefni og ábyrgð

Skipulagning og framkvæmd náms- og starfsfræðslu í skólanum, ráðgjöf til nemenda um náms- og starfsval, koma að kynningu skólans, skipulagning ýmissa aðgerða til að stuðla að betri líðan nemenda í skólanum, eftirlit með námsgengi nemenda, aðstoð við nemendur við námstækni og markmiðasetningu, aðstoð við kennara vegna námsvanda einstakra nemenda og fleira. Námsráðgjafi er tengiliður farsældar.

Hæfniskröfur

Háskólamenntun sem nýtist í starfi. Æskilegt er að viðkomandi hafi réttindi sem náms- og starfsráðgjafi. Reynsla á sviði námsráðgjafar er kostur.

Hafa metnað, frumkvæði, öguð vinnubrögð og jákvætt hugarfar að leiðarljósi í starfi.

Það þarf að búa yfir mikilli samskiptafærni, skipulagshæfni, þjónustulund og hæfni til að starfa með öðrum sem og að vinna sjálfstætt.

Hafa mikinn áhuga á því að vinna með ungu fólki.

Mjög góð tölvukunnátta og þekking á upplýsingatækni er nauðsynleg, til að mynda þekking og kunnátta í kennslukerfum og Office365.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.

Umsóknum skal skilað í gegnum Starfatorg, www.starfatorg.is. Náms- og starfsferilsskrá skal fylgja innsendri umsókn auk afrits af prófskírteinum og leyfisbréfi (staðfesting á menntun og starfsréttindum). Kynningarbréf skal fylgja umsókn þar sem umsækjandi fer yfir ástæður umsóknar og hvernig hann uppfyllir hæfnikröfur starfsins. Umsækjendur þurfa að hafa hreina sakaskrá.

Ráðið er í starfið frá og með 1. ágúst 2026.

Starfshlutfall er 40%

Umsóknarfrestur er til og með 10.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Halldór Jón Gíslason

Skólameistari

Tölvupóstur: halldor@fsh.is

Sími: 464-1344

Þjónustuaðili

Framhalds­skólinn á Húsavík

Upplýsingar um starf

Starf

Staða náms- og starfsráðgjafa

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

40%

Starf skráð

24.03.2026

Umsóknarfrestur

10.04.2026