Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Vestur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Yfirlæknir við lyflækningadeild Heilbrigðisstofnunar Vesturlands, Akranesi.

Staðsetning

Vesturland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

18.03.2026

Umsóknarfrestur

15.04.2026

Yfirlæknir við lyflækningadeild Heilbrigðisstofnunar Vesturlands, Akranesi.

Staða yfirlæknis við lyflækningadeild HVE, Akranesi er laus til umsóknar. Um er að ræða 100% stöðu sem veitist frá 1 september. 2026 eða eftir samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Yfirlæknir hefur umsjón og ber ábyrgð á lækningastarfi við deildina.

  • Starfinu fylgir vaktskylda, vinna á göngudeild, þátttaka í kennslu heilbrigðisstétta og starfsþjálfun sérnámsgrunnlækna.

  • Viðkomandi sinnir samskipum við sjúklinga, aðstandendur og annað heilbrigðisstarfsfólk.

  • Sér um gerð vaktaáætlana og skipulag afleysinga.

  • Hefur frumkvæði að gæða og umbótaverkefnum.

  • Hefur fjárhagslega ábyrgð skv. rekstraráætlunum og sinnir skráningu og skýrslugerð eftir því sem framkvæmdstjóri lækninga gerir kröfur um.

  • Starfar samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007, lögum um heilbrigðisstarfsmenn nr. 34/2012, lögum um réttindi sjúklinga nr. 74/1997 og lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.

Hæfniskröfur

  • Sérfræðiréttindi í almennum lyflækningum og íslenskt starfsleyfi

  • Viðurkenning í einhverri af undirgreinum lyflækninga er kostur

  • Menntun og/eða reynsla á sviði stjórnunar er æskileg

  • Reynsla af þverfaglegri teymisvinnu

  • Jákvætt viðmót og hæfni í mannlegum samskiptum

  • Reynsla af kennslu og þekking á vísindastörfum æskileg

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Sækja skal um á starfatorg.is. Umsókn skal fylgja ítarlegar upplýsingar um nám, starfsferil, rannsóknir og kennslustörf.

Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE) samanstendur af átta starfsstöðvum. HVE veitir almenna og sérhæfða heilbrigðisþjónustu í heilbrigðisumdæmi Vesturlands í samræmi við lög og reglur á hverjum tíma. Þjónustan er veitt íbúum umdæmisins og öðrum sem eftir henni leita.

Kjarnastarfsemin skiptist á þrjú málefnasvið eftir meginviðfangsefnum; heilsugæslusvið, hjúkrunarsvið og sjúkrasvið. Heilbrigðisumdæmi Vesturlands nær yfir sveitarfélögin Akraneskaupstað, Hvalfjarðarsveit, Skorradalshrepp, Borgarbyggð, Eyja- og Miklaholtshrepp, Snæfellsbæ, Grundarfjarðarbæ, Helgafellssveit, Stykkishólmsbæ, Dalabyggð, Reykhólahrepp, Strandabyggð, Kaldrananeshrepp, Árneshrepp og Húnaþing vestra.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 15.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Ingi Karl Reynisson

Yfirlæknir

Tölvupóstur: ingi.k.reynisson@hve.is

Sigurður Einar Sigurðsson

Framkvæmdarstjóri Lækninga

Tölvupóstur: sigurdur.e.sigurdsson@hve.is

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Vestur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Yfirlæknir við lyflækningadeild Heilbrigðisstofnunar Vesturlands, Akranesi.

Staðsetning

Vesturland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

18.03.2026

Umsóknarfrestur

15.04.2026