
Þjónustuaðili
Framhaldsskólinn á Húsavík
Upplýsingar um starf
Starf
Íþróttakennari við Framhaldsskólann á Húsavík.
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
25%
Starf skráð
24.03.2026
Umsóknarfrestur
10.04.2026
Íþróttakennari við Framhaldsskólann á Húsavík.
Laus er til umsóknar 25% staða íþróttakennara við Framhaldsskólann á Húsavík fyrir skólaárið 2026-2027. Framhaldsskólinn á Húsavík býður upp á nám á félags- og hugvísindabraut, náttúruvísindabraut, opinni stúdentsbraut, heilsunuddbraut, stúdentsbraut að loknu starfsnámi, almennri braut og starfsbraut. Menntasýn Framhaldsskólans á Húsavík er að veita öllum nemendum jafnan stuðning og undirbúning undir frekara nám eða þátttöku í samfélaginu með ríku utanumhaldi og eftirfylgni með námi og líðan hvers nemanda. Þetta er gert með áherslu á leiðsagnarmat, vörðuviðtöl, umsjón og miðannarmat auk annarrar eftirfylgni.
Helstu verkefni og ábyrgð
Kennsla í íþróttum við Framhaldsskólann á Húsavík. Kennarinn ber ábyrgð á kennslu, undirbúningi og námsmati í viðkomandi faggrein og tekur þátt í faglegu samstarfi kennara og starfsfólks við skólann.
Hæfniskröfur
Umsækjendur skulu hafa réttindi til að nota starfsheitið kennari (séu með leyfisbréf sem kennari).
Umsækjandi skal:
Uppfylla kröfur um menntun og hæfni skv. lögum nr. 95/2019
Hafa metnað, frumkvæði, öguð vinnubrögð og jákvætt hugarfar að leiðarljósi í starfi
Búa yfir mikilli samskiptafærni, skipulagshæfni, þjónustulund og hæfni til að starfa með öðrum sem og að vinna sjálfstætt
Hafa mikinn áhuga á kennslu og því að vinna með nemendum
Mjög góð tölvukunnátta og þekking á upplýsingatækni er nauðsynleg, til að mynda þekking og kunnátta í kennslukerfum og Office365.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.
Umsóknum skal skilað í gegnum Starfatorg, www.starfatorg.is. Náms- og starfsferilsskrá skal fylgja innsendri umsókn auk afrits af prófskírteinum og leyfisbréfi (staðfesting á menntun og starfsréttindum). Kynningarbréf skal fylgja umsókn þar sem umsækjandi fer yfir ástæður umsóknar og hvernig hann uppfyllir hæfnikröfur starfsins. Umsækjendur þurfa að hafa hreina sakaskrá.
Ráðið er í starfið frá og með 1. ágúst 2026.
Starfshlutfall er 25%
Umsóknarfrestur er til og með 10.04.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Framhaldsskólinn á Húsavík
Upplýsingar um starf
Starf
Íþróttakennari við Framhaldsskólann á Húsavík.
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
25%
Starf skráð
24.03.2026
Umsóknarfrestur
10.04.2026