Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Doktorsnemi á sviði stjórnskipulags og stýringar nýsköpunar

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

10.03.2026

Umsóknarfrestur

31.03.2026

Doktorsnemi á sviði stjórnskipulags og stýringar nýsköpunar

Laust er til umsóknar fullt starf doktorsnema við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands. Doktorsverkefnið er á sviði stjórnskipulags og stýringar nýsköpunar (innovation governance) og fjallar um ábyrga innleiðingu og notkun gervigreindar í opinberri stjórnsýslu. Verkefnið er styrkt af NordForsk sem hluti af verkefninu RAISE Monitor Hub og unnið í samvinnu við rannsakendur í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Mótun rannsóknaverkefnis.

  • Gagnasöfnun, úrvinnsla og túlkun gagna.

  • Þátttaka í þróun hugbúnaðar.

  • Kynningar á niðurstöðum í ræðu og riti, þ.m.t. útgáfa tímaritsgreina í ritrýndum tímaritum.

  • Þátttaka í kennslu og leiðbeiningu nemenda á framhaldsstigi.

Hæfniskröfur

  • Meistaragráða í iðnaðarverkfræði eða skyldum greinum, þ.m.t. tölvunarfræði og gagnavísindum, eða meistaragráða sem bætir félagsvísindum eða hugvísindum við bakgrunn úr verkfræði. Meistaragráðu skal vera lokið þegar starf hefst.

  • Þverfræðilegt meistaranám er kostur.

  • Reynsla af notkun aðferðarfræði félagsvísinda eða hugvísinda er kostur.

  • Starfsreynsla úr opinberri stjórnsýslu er kostur.

  • Tæknileg þekking eða reynsla af gervigreind er kostur.

  • Góð almenn hæfni í hugbúnaðargerð er kostur.

  • Metnaður og geta til að leysa krefjandi verkefni.

  • Geta til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi á skipulagðan hátt.

  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum og í að miðla niðurstöðum verkefna í rituðu og töluðu máli.

  • Góð enskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli. Íslenskukunnátta er kostur.

Ráðning er háð því að umsækjandi sæki formlega um doktorsnám við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands og að umsóknin sé samþykkt af deild.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:

  • Ferilskrá

  • Kynningarbréf þar sem fjallað er um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins

  • Afrit af prófskírteinum

  • Upplýsingar um umsagnaraðila

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans.Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.

Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.

Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.

Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 31.03.2026

Nánari upplýsingar veitir

Rögnvaldur Jóhann Sæmundsson

Tölvupóstur: rjs@hi.is

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Doktorsnemi á sviði stjórnskipulags og stýringar nýsköpunar

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

10.03.2026

Umsóknarfrestur

31.03.2026