Þjónustuaðili
Lögreglustjórinn á Austurlandi
Upplýsingar um starf
Starf
Lögreglumenn - Lögreglustjórinn á Austurlandi
Staðsetning
Austurland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
10.03.2026
Umsóknarfrestur
27.03.2026
Lögreglumenn - Lögreglustjórinn á Austurlandi
Lögreglustjórinn á Austurlandi auglýsir lausar til umsóknar 10 stöður lögreglumanna. Gert er ráð fyrir að lögreglustjóri setji í stöðurnar til reynslu í sex mánuði frá og með 1. júní 2026, eða samkvæmt nánara samkomulagi, með skipun í huga að reynslutímabili loknu.
Hjá embættinu starfa tæplega fjörutíu manns í víðfeðmu umdæmi sem nær frá Djúpavogi í suðri til Vopnafjarðar í norðri. Tólf þéttbýliskjarnar eru í umdæminu, gott gróskumikið mannlíf, öflug fyrirtæki og stórfengleg náttúra. Alþjóðaflugvöllur er á Egilsstöðum og vikulegar ferjusiglingar Norrænu til Seyðisfjarðar. Sjö landamærahafnir eru í umdæminu. Embætti Lögreglustjórans á Austurlandi er nútímaleg og framsækin stofnun sem er til staðar fyrir alla alltaf. Gildi embættisins eru traust, virðing og framsækni.
Helstu verkefni og ábyrgð
Hlutverk lögreglu er að gæta almannaöryggis og tryggja réttaröryggi; stemma stigum við afbrotum og vinna að uppljóstran brota; greiða götu borgaranna og veita yfirvöldum aðstoð við framkvæmd starfa sinna og að halda uppi almannafriði og allsherjarreglu.
Hæfniskröfur
Umsækjendur skulu hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómanámi í lögreglufræðum sem jafngildir a.m.k. 120 stöðluðum námseiningum, þ.m.t. starfsnámi á vegum lögreglunnar. Vakin er athygli á að lögreglustjóra er heimilt að ráða starfsmenn sem ekki hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómaprófi í lögreglufræðum, þ.m.t. starfsnámi á vegum lögreglunnar að því gefnu að ekki fáist faglærðir lögreglumenn í stöðurnar. Þeir sem ekki hafa áður starfað í lögreglu verða að vera reiðubúnir að sitja nýliðanámskeið og standast þrekpróf og læknisskoðun. Auk framangreinds eru gerðar eftirfarandi hæfniskröfur til umsækjenda:
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og hæfni til að starfa í hóp.
Sjálfstæði í starfi, sveigjanleiki og gott álagsþol
Skipulagshæfni og nákvæmni í vinnubrögðum
Lausnamiðað og jákvætt viðhorf
Frumkvæði og drifkraftur
Góð íslensku- og enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Landssamband lögreglumanna hafa gert.
Umsókn skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið, auk afrita af prófskírteinum ásamt nöfnum tveggja umsagnaraðila. Umsækjendur eru beðnir um að vanda umsóknir sínar.
Til að staðreyna hvort umsækjandi uppfylli skilyrði e-liðar 2. mgr. 28. gr. lögreglulaga nr. 90/1996 er lögreglustjóra heimilt skv. 28. gr. a. sömu laga að afla upplýsinga um umsækjendur úr sakaskrá og málaskrám lögreglu.
Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um setningu liggur fyrir. Athygli er vakin á að umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Embættið leggur áherslu á jafnrétti og hvetur fólk af öllum kynjum til að sækja um.
Starfshlutfall er 100% og er vaktavinna með bakvaktarskyldu.
Umsóknarfrestur er til og með 27.03.2026
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 27.03.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Lögreglustjórinn á Austurlandi
Upplýsingar um starf
Starf
Lögreglumenn - Lögreglustjórinn á Austurlandi
Staðsetning
Austurland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
10.03.2026
Umsóknarfrestur
27.03.2026