Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur á geðdeild við Sjúkrahúsið á Akureyri

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

20.03.2026

Umsóknarfrestur

08.04.2026

Hjúkrunarfræðingur á geðdeild við Sjúkrahúsið á Akureyri

Geðdeild Sjúkrahússins á Akureyri auglýsir lausa 80-100% stöðu hjúkrunarfræðings. Um er að ræða vaktavinnu á þrískiptum vöktum.

Staðan er laus 01.07.2026 eða eftir nánara samkomulagi. Frábært tækifæri á góðum vinnustað þar sem starfsumhverfið er fjölbreytt, spennandi og krefjandi.

Starfið er tilvalið tækifæri fyrir nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga sem vilja kynnast hjúkrun innan geðlækninga en ekki síður fyrir hjúkrunarfræðinga sem vilja breyta til í starfi og takast á við nýjar áskoranir í fjölbreyttu og krefjandi starfsumhverfi undir leiðsögn reyndra hjúkrunarfræðinga.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Í störfunum felst ábyrgð á öllum almennum verkefnum hjúkrunarfræðinga samkvæmt lögum og reglugerðum

  • Einnig að unnið sé samkvæmt markmiðum hjúkrunar, deildarinnar og stofnunarinnar

  • Unnið er á þrískiptum vöktum í fjölbreyttu starfsumhverfi

Hæfniskröfur

  • Umsækjandi skal hafa fullgilt hjúkrunarpróf frá viðurkenndri menntastofnun og gilt íslenskt starfsleyfi

  • Lögð er áhersla á frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og hæfileika í samskiptum og samvinnu

  • Reynsla af hjúkrun á geðdeild er kostur

  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.

Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.

Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 08.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Valborg Lúðvíksdóttir

Tölvupóstur: vl0409@sak.is

Sími: 463-0100

Kristjana Kristjánsdóttir

Tölvupóstur: kristjanak@sak.is

Sími: 463-0100

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur á geðdeild við Sjúkrahúsið á Akureyri

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

20.03.2026

Umsóknarfrestur

08.04.2026