
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Upplýsingar um starf
Starf
Yfirlæknir svæfingadeildar
Staðsetning
Vesturland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
18.03.2026
Umsóknarfrestur
15.04.2026
Yfirlæknir svæfingadeildar
Laus eru til umsóknar staða yfirlæknis svæfingadeildar HVE Akranesi. Um er að ræða 100% stöðu auk bakvakta. Staðan er laus frá1 september 2026 eða eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Yfirlæknir hefur umsjón og ber ábyrgð á lækningastarfi við deildina.
Viðkomandi sinnir samskipum við sjúklinga, aðstandendur og annað heilbrigðisstarfsfólk auk þess að sinna vísindastörfum og kennslu.
Sér um gerð vaktaáætlana og skipulag afleysinga.
Hefur frumkvæði að gæða og umbótaverkefnum.
Hefur fjárhagslega ábyrgð skv. rekstraráætlunum og sinnir skráningu og skýrslugerð eftir því sem framkvæmdstjóri lækninga gerir kröfur um.
Starfar samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007, lögum um heilbrigðisstarfsmenn nr. 34/2012, lögum um réttindi sjúklinga nr. 74/1997 og lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
Sjúkrahúsið á Akranesi er deildaskipt með handlækningadeild, fæðinga- og kvensjúkdómadeild og lyflækningadeild ásamt stoðdeildum. Fjölbreytt starfsemi fer fram á skurðdeild sjúkrahússins. Aðgerðir eru framkvæmdar á 2 til 3 skurðstofum alla daga vikunnar. Aðallega er um að ræða almennar skurðlækningar, aðgerðir vegna kvensjúkdóma og bæklunaraðgerðir. Liðskiptiaðgerðir eru nú yfir 400 ári og stefnt er að því að auka bráðaaðgerðir vegna brota. Fjöldi kvensjúkdómaaðgerða er framkvæmdur á deildinni, t.a.m. mikið af grindarbotnsaðgerðum, og hafa rúmlega 400 konur komið árlega til aðgerðar.
Þjónusta svæfingadeildarinnar við fæðandi konur er stór hluti af starfinu og hafa fæðingar verið allt að 350 á ári. Svæfingalæknar sjá um fyrstu meðferð nýbura ef upp koma vandamál eftir fæðingu. Svæfingalæknar sjúkrahússins koma að meðferð bráðveikra á sjúkrahúsinu og hafa umsjón með flutningi alvarlega veikra á Landspítala. Þeir hafa sömuleiðis verið ráðgefandi við meðferð verkja hjá krabbameinssjúklingum og aðstoðað við uppsetningu á verkjalyfjadælum.
Síðustu áratugi hafa tveir svæfingalæknar starfað á deildinni og auk þess hafa utanaðkomandi svæfingalæknar veitt hjálp og annast afleysingar. Stefnt er að því nú að manna fjórar stöður svæfingalækna. Sex svæfingahjúkrunarfræðingar eru á deildinni og tíu skurðhjúkrunarfræðingar. Tæplega tuttugu sérfræðilæknar starfa nú á deildum sjúkrahússins. Heilsugæslustöð fyrir Akranes og nágrenni er í sömu byggingu og spítalinn. Upptökusvæði sjúkrahússins er Vesturland ásamt austurhluta Barðastrandasýslu, Strandasýslu og Vestur- Húnavatnssýslu. Sjúklingar sem koma í skurðaðgerðir koma hins vegar alls staðar að af landinu.
Hæfniskröfur
Sérfræðileyfi í svæfinga- og gjörgæslulækningum.
Menntun og/eða reynsla á sviði stjórnunar er kostur.
Reynsla af þverfaglegri teymisvinnu.
Reynsla af kennslu og þekking á vísindastörfum æskileg
Lögð er áhersla á faglegan metnað, jákvæðni, lipurð og áreiðanleika í samskiptum.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Vaktir skv. vaktafyrirkomulagi deildarinnar.
Um er að ræða 100% stöðugildi en það er umsemjanlegt.
Sækja skal um á starfatorg.is. Umsókn skal fylgja náms- og ferilskrá með staðfestum upplýsingum um menntun, læknisstörf ásamt gögnum um vísindavinnu og staðfestu afriti af opinberu starfsleyfi.
Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast til Sigurðar E. Sigurðssonar framkvæmdastjóra lækninga.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 15.04.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Upplýsingar um starf
Starf
Yfirlæknir svæfingadeildar
Staðsetning
Vesturland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
18.03.2026
Umsóknarfrestur
15.04.2026