Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Framhalds­skólinn á Húsavík

Upplýsingar um starf

Starf

Dönskukennari við Framhaldsskólann á Húsavík.

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

25%

Starf skráð

24.03.2026

Umsóknarfrestur

10.04.2026

Dönskukennari við Framhaldsskólann á Húsavík.

Laus er til umsóknar 25% staða dönskukennara við Framhaldsskólann á Húsavík fyrir skólaárið 2026-2027. Framhaldsskólinn á Húsavík býður upp á nám á félags- og hugvísindabraut, náttúruvísindabraut, opinni stúdentsbraut, heilsunuddbraut, stúdentsbraut að loknu starfsnámi, almennri braut og starfsbraut. Menntasýn Framhaldsskólans á Húsavík er að veita öllum nemendum jafnan stuðning og undirbúning undir frekara nám eða þátttöku í samfélaginu með ríku utanumhaldi og eftirfylgni með námi og líðan hvers nemanda. Þetta er gert með áherslu á leiðsagnarmat, vörðuviðtöl, umsjón og miðannarmat auk annarrar eftirfylgni.

Helstu verkefni og ábyrgð

Kennsla í dönsku við Framhaldsskólann á Húsavík. Kennarinn ber ábyrgð á kennslu, undirbúningi og námsmati í viðkomandi faggrein og tekur þátt í faglegu samstarfi kennara og starfsfólks við skólann.

Hæfniskröfur

Umsækjendur skulu hafa réttindi til að nota starfsheitið kennari (séu með leyfisbréf sem kennari).

Umsækjandi skal:

Uppfylla kröfur um menntun og hæfni skv. lögum nr. 95/2019

Hafa metnað, frumkvæði, öguð vinnubrögð og jákvætt hugarfar að leiðarljósi í starfi

Búa yfir mikilli samskiptafærni, skipulagshæfni, þjónustulund og hæfni til að starfa með öðrum sem og að vinna sjálfstætt

Hafa mikinn áhuga á kennslu og því að vinna með nemendum

Mjög góð tölvukunnátta og þekking á upplýsingatækni er nauðsynleg, til að mynda þekking og kunnátta í kennslukerfum og Office365.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.

Umsóknum skal skilað í gegnum Starfatorg, www.starfatorg.is. Náms- og starfsferilsskrá skal fylgja innsendri umsókn auk afrits af prófskírteinum og leyfisbréfi (staðfesting á menntun og starfsréttindum). Kynningarbréf skal fylgja umsókn þar sem umsækjandi fer yfir ástæður umsóknar og hvernig hann uppfyllir hæfnikröfur starfsins. Umsækjendur þurfa að hafa hreina sakaskrá.

Ráðið er í starfið frá og með 1. ágúst 2026.

Starfshlutfall er 25%

Umsóknarfrestur er til og með 10.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Halldór Jón Gíslason

Skólameistari

Tölvupóstur: halldor@fsh.is

Sími: 464-1344

Þjónustuaðili

Framhalds­skólinn á Húsavík

Upplýsingar um starf

Starf

Dönskukennari við Framhaldsskólann á Húsavík.

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

25%

Starf skráð

24.03.2026

Umsóknarfrestur

10.04.2026