Þjónustuaðili
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum
Upplýsingar um starf
Starf
Landamæraverðir - Lögreglustjórinn á Suðurnesjum
Staðsetning
Suðurnes
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
10.03.2026
Umsóknarfrestur
24.03.2026
Landamæraverðir - Lögreglustjórinn á Suðurnesjum
Við embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum eru lausar til umsóknar stöður landamæravarða í sumarafleysingar. Gert er ráð fyrir að ráðið verði í stöðurnar frá og með 16. apríl 2026.
Hjá embættinu starfa um 200 manns í ólíkum og krefjandi störfum. Í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum er Keflavíkurflugvöllur sem gegnir lykilhlutverki í uppbyggingu almannaflugs á Íslandi og tengir landið við Evrópu og Norður-Ameríku. Í fjölmennu liði lögreglunnar á Suðurnesjum býr mikill þróttur og góð þekking þar sem áhersla er lögð á jafnrétti, starfsánægju, heilbrigðan starfsanda og góð samskipti. Við ráðningar hjá LSS er tekið mið af jafnréttisáætlun embættisins.
Helstu verkefni og ábyrgð
Að sinna fyrsta stigs landamæraeftirliti í vegabréfahliðum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli
Að starfa undir stjórn lögreglumanna og við hlið annarra landamæravarða við framkvæmd landamæraeftirlits
Að hafa eftirlit með flugfarþegum líkt og skilgreint er í reglugerð um för yfir landamæri
Nánar er kveðið á um hlutverk landamæravarða í reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017.
Hæfniskröfur
Vera 20 ára eða eldri
Hafa lokið stúdentsprófi eða annarri sambærilegri menntun. Ekki er gerð krafa um menntun umfram stúdentspróf.
Ekki hafa gerst brotlegur við refsilög, þetta gildir þó ekki ef brot er smávægilegt eða langt er um liðið frá því að það var framið, né hafa sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem landamæraverðir verða almennt að njóta
Standast bakgrunnsathugun með jákvæðri umsögn
Vera andlega og líkamlega heilbrigður
Hafa gott vald á íslensku og ensku, kunnátta í öðrum tungumálum er kostur
Búa yfir almennri tölvukunnáttu
Landamæraverðir skulu sækja og standast nám um landamæravörslu ásamt starfsþjálfun
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Starfið er vaktavinna.
Þeir umsækjendur sem valdir verða þurfa að standast námskeið sem áætlað er að hefjist 16. apríl.
Athygli umsækjenda er vakin á heimild til að skoða sakaferil umsækjenda um starf í lögreglu en samkvæmt 28. gr. a lögreglulaga nr. 90/1996 er mælt fyrir um að engan megi skipa, setja eða ráða til starfa hjá lögreglu sem hefur gerst sekur um refsivert athæfi sem telja má svívirðilegt að almenningsáliti eða sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta. Til þess að staðreyna þetta er lögreglu heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá og málaskrám lögreglu.
Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að sækja um starfið með því að smella á hlekkinn hér að neðan og láta ferilskrá og kynningarbréf fylgja með sem viðhengi.
Einungis er tekið við umsóknum með þessum hætti. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Varðandi persónuverndarákvæði gagnvart umsækjendum, sjá vef lögreglunnar: Suðurnes | Lögreglan
Auglýsing þessi gildir í 6 mánuði, sbr. ákvæði 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 24.03.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum
Upplýsingar um starf
Starf
Landamæraverðir - Lögreglustjórinn á Suðurnesjum
Staðsetning
Suðurnes
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
10.03.2026
Umsóknarfrestur
24.03.2026