Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Náttúru­vernd­ar­stofnun

Upplýsingar um starf

Starf

Svæðissérfræðingur á Norðausturlandi - aðstoðarþjóðgarðsvörður í Jökulsárgljúfrum

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

09.03.2026

Umsóknarfrestur

23.03.2026

Svæðissérfræðingur á Norðausturlandi - aðstoðarþjóðgarðsvörður í Jökulsárgljúfrum

Náttúruverndarstofnun auglýsir laust til umsóknar starf svæðissérfræðings fyrir Norðausturland sem sinnir einnig starfi aðstoðarþjóðgarðsvarðar í Jökulsárgljúfrum í Vatnajökulsþjóðgarði. Svæðissérfræðingur gegnir hlutverki staðgengils þjóðgarðsvarðar og tekur virkan þátt í stjórnun og þróun svæðisins auk annarra friðlýstra svæða á Norðausturlandi. Leitað er að kraftmiklum einstaklingi sem vill nýta þekkingu sína og áhuga á náttúruvernd til að taka þátt í þróun náttúruverndar, samstarfi og þjónustu við gesti á svæðinu. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf þar sem frumkvæði og sjálfstæði fá að njóta sín. Starfsstöð er í Ásbyrgi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Skipulagning landvörslu og annarra rekstrar- og mannauðsmála í umboði þjóðgarðsvarðar-svæðisstjóra á svæðinu

  • Ber ábyrgð á móttöku, leiðsögn og þjálfun starfsfólks

  • Ber ábyrgð á rekstri gestastofu, tjaldsvæðis og innkaupum

  • Ber ábyrgð á gæða- og umhverfismálum svæðisins

  • Leiðir fræðslumál svæðisins

  • Tekur þátt í þróun og stefnumótun svæðisins og Náttúruverndarstofnunar

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi

  • Mjög góð samskipta- og samstarfsfærni

  • Geta til að þróa hugmyndir og verklag

  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi

  • Áhugi og þekking á náttúruvernd og umhverfismálum

  • Þekking á starfsemi þjóðgarða og friðlýstra svæða er kostur

  • Þekking og reynsla af landvörslu er kostur

  • Staðþekking á Norðausturlandi, einkum Jökulsárgljúfrum er kostur

  • Góð þekking á íslensku og ensku

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Vinsamlegast látið ferliskrá og kynningarbréf þar sem færð eru rök fyrir hæfni í starfið fylgja með umsókninni.Við hvetjum áhugasöm til að sækja um óháð kyni og uppruna.Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu verður tekin.

Umsóknarfrestur er til 23.mars 2026

Um Náttúruverndarstofnun

Stofnunin hefur víðtækt hlutverk í náttúruvernd, sjálfbærri þróun og vernd friðlýstra svæða ásamt umsjón með villtum dýrum og veiðistjórnun. Markmið hennar er að tryggja að náttúra Íslands njóti verndar til framtíðar. Hjá Náttúruverndarstofnun starfar samheldinn hópur starfsmanna með fjölbreytta reynslu, sem sinnir margvíslegum verkefnum tengdum náttúruvernd og þjónustu við gesti þjóðgarða og annarra friðlýstra svæða. Starfsstöðvar stofnunarinnar eru 16 um allt land.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 23.03.2026

Nánari upplýsingar veitir

Guðrún Jónsdóttir

Þjóðgarðsvörður

Tölvupóstur: gudrun.jonsdottir@nattura.is

Þjónustuaðili

Náttúru­vernd­ar­stofnun

Upplýsingar um starf

Starf

Svæðissérfræðingur á Norðausturlandi - aðstoðarþjóðgarðsvörður í Jökulsárgljúfrum

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

09.03.2026

Umsóknarfrestur

23.03.2026