Þjónustuaðili
Náttúruverndarstofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Yfirlandvörður í Jökulsárgljúfrum
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
09.03.2026
Umsóknarfrestur
23.03.2026
Yfirlandvörður í Jökulsárgljúfrum
Náttúruverndarstofnun auglýsir starf yfirlandvarðar laust til umsóknar í Jökulsárgljúfrum og innan annarra verndarsvæða Norðausturlands .
Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf í einstakri náttúru. Staða yfirlandvarðar er heilsársstaða og heyrir undir þjóðgarðsvörð á svæðinu. Starfsstöð er Ásbyrgi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ber ábyrgð á daglegri verkstjórn starfsfólks og hefur yfirsýn yfir stöðu verkefna
Sinnir þjálfun og móttaka sumarstarfsfólks
Fræðsla og upplýsingagjöf á svæðinu
Vinnur að öryggismálum
Eftirlit með náttúru og innviðum ásamt viðhaldi innviða
Þjónusta og upplýsingagjöf til ferðafólks í samvinnu við aðra landverði
Hæfniskröfur
Landvarðaréttindi
Mjög góð samskipta- og samstarfsfærni
Geta til að þróa hugmyndir og verklag
Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
Áhugi og þekking á náttúruvernd og umhverfismálum
Færni í miðlun upplýsinga
Gott vald á íslensku og ensku. Frekari tungumálakunnátta er kostur
Almenn ökuréttindi, reynsla af akstri breyttra jeppa og vinnuvéla er kostur
Reynsla af verkstjórn og/eða mannauðsmálum er kostur
Verkþekking er kostur
Réttindi í fyrstu hjálp eru kostur
Störf á friðlýstum svæðum og starf við leiðsögn, reynsla af útivist og fjallamennsku er kostur.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Vinsamlegast látið ferliskrá og kynningarbréf þar sem færð eru rök fyrir hæfni í starfið fylgja með umsókninni.Við hvetjum áhugasöm til að sækja um óháð kyni og uppruna.Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu verður tekin.
Um Náttúruverndarstofnun:
Stofnunin hefur víðtækt hlutverk í náttúruvernd, sjálfbærri þróun og vernd friðlýstra svæða ásamt umsjón með villtum dýrum og veiðistjórnun. Markmið hennar er að tryggja að náttúra Íslands njóti verndar til framtíðar. Hjá Náttúruverndarstofnun starfar samheldinn hópur starfsmanna með fjölbreytta reynslu, sem sinnir margvíslegum verkefnum tengdum náttúruvernd og þjónustu við gesti þjóðgarða og annarra friðlýstra svæða. Starfsstöðvar stofnunarinnar eru 16 talsins um allt land.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 23.03.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Náttúruverndarstofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Yfirlandvörður í Jökulsárgljúfrum
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
09.03.2026
Umsóknarfrestur
23.03.2026