
Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Aðjúnkt við Námsbraut í sjúkraþjálfun
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
65%
Starf skráð
11.03.2026
Umsóknarfrestur
23.03.2026
Aðjúnkt við Námsbraut í sjúkraþjálfun
Laust er til umsóknar 65% starf aðjúnkts við Námsbraut í sjúkraþjálfun við Læknadeild á Heilbrigiðisvísindasviði. Ráðið verður tímabundið í starfið til tveggja ára.
Starfsskyldur aðjúnktsins skiptast í kennslu (65%), rannsóknir (31%) og stjórnun (4%). Aðjúnktinum er einkum ætlað að annast skipulagningu og kennslu námskeiða á sviði hreyfivísinda, aðferðafræði rannsókna og rafmagnsfræði, auk þess að taka virkan þátt í starfsemi námsbrautarinnar með áherslu á kennslufræði.
Helstu verkefni og ábyrgð
Rannsóknatengd störf á sérsviði viðkomandi innan sjúkraþjálfunar.
Kennsla og námsmat á sviði hreyfivísinda, aðferðafræði rannsókna, rafmagnsfræði, sjúklingafræðslu og kennslufræða.
Umsjón með námskeiðum og námsmati einstakra námskeiða námsbrautarinnar (samskipti við kennara, nemendur og prófastofu).
Hæfniskröfur
Doktorspróf á sviði sjúkraþjálfunar eða skyldum greinum.
Reynsla af kennslu á háskólastigi.
Samstarfshæfni, nákvæmni, útsjónarsemi og þjónustulund.
Gott vald á upplýsingatækni og hæfni til að tileinka sér nýjungar á því sviði.
Sjálfstæð, skipulögð og lausnamiðuð vinnubrögð.
Góð enskukunnátta, í ræðu og riti.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Við ráðningu verður miðað við að sá er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum Námsbrautar í sjúkraþjálfun.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst, eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
Ferilskrá
Kynningarbréf þar sem fjallað er um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins
Afrit af prófskírteinum
Upplýsingar um umsagnaraðila
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.
Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.
Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi. 36 stunda vinnuvika hefur verið innleidd í stjórnsýslustörfum skólans.
Starfshlutfall er 65%
Umsóknarfrestur er til og með 23.03.2026
Nánari upplýsingar veitir
Sólveig Ása Árnadóttir
prófessor og formaður Námsbrautar í sjúkraþjálfun
Tölvupóstur: saa@hi.is
Sími: 5254074

Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Aðjúnkt við Námsbraut í sjúkraþjálfun
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
65%
Starf skráð
11.03.2026
Umsóknarfrestur
23.03.2026