Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Starfsmaður í umönnun á taugaendurhæfingardeild Landakoti

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

06.03.2026

Umsóknarfrestur

16.03.2026

Starfsmaður í umönnun á taugaendurhæfingardeild Landakoti

Ert þú góður liðsmaður og langar þig að starfa í umhverfi þar sem ríkir góður starfsandi og áhersla er á samvinnu, virðingu og jákvætt starfsumhverfi?

Við leitum eftir áhugasömum einstaklingi sem hefur ánægju af samstarfi við aldraða. Ef þú ert lífsglaður og metnaðarfullur starfsmaður þá viljum við fá þig í vinnu. Í boði er gefandi starf fyrir þann sem vill taka þátt í meðferð og endurhæfingu aldraðra þar sem markmiðið er að auka lífsgæði og færni til athafna daglegs lífs. Á deildinni starfar samhentur og þverfaglegur hópur. Markvisst er unnið að umbótum og framþróun.

Starfshlutfall er 80-100% og æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umönnun einstaklinga í samvinnu við aðra fagaðila

  • Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu

  • Þátttaka í þróun og umbótum í starfsemi deildarinnar

Hæfniskröfur

  • Reynsla af umönnun æskileg

  • Jákvætt viðmót og góð samskiptahæfni

  • Hæfni og geta til að starfa í teymi

  • Góð íslenskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Starfsmaður, umönnun, aðhlynning, teymisvinna

Tungumálahæfni: íslenska 4/5

Staðsetning: Túngata 26, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 16.03.2026

Nánari upplýsingar veitir

Jóhanna Friðriksdóttir

Deildarstjóri

Tölvupóstur: johannaf@landspitali.is

Gunnþóra Sveinsdóttir

Aðstoðardeildarstjóri

Tölvupóstur: gunnthos@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Starfsmaður í umönnun á taugaendurhæfingardeild Landakoti

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

06.03.2026

Umsóknarfrestur

16.03.2026