
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraliði á taugaendurhæfingardeild Landakoti
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
06.03.2026
Umsóknarfrestur
19.03.2026
Sjúkraliði á taugaendurhæfingardeild Landakoti
Laust er til umsóknar starf sjúkraliða á á taugaendurhæfingardeild á Landakoti. Deildin er 16 rúma meðferðar- og endurhæfingardeild fyrir sjúklinga sem koma frá bráðadeildum Landspítala. Á deildinni starfa um 40 einstaklingar í þverfaglegu teymi. Markvisst er unnið að umbótum í starfi og umhverfi og höfum lagt áherslu á byltuvarnir, sýkingavarnir og fyrirbyggingu lyfjaatvika.
Í boði er góð einstaklingsaðlögun undir leiðsögn reyndra sjúkraliða og gott starfsumhverfi. Starfið býður upp á tækifæri til að þróa með sér mikla faglega þekkingu á hjúkrun aldraðra og hæfni í sjálfstæðum vinnubrögðum.
Vaktarfyrirkomulag, starfshlutfall og upphaf starfa er samkomulag en æskilegt að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
Við leggjum áherslu á jákvæðni, fagmennsku og virðingu gagnvart samstarfsfólki og vinnustaðnum okkar. Velkomið að kíkja í heimsókn, áhugasamir hafi samband við Jóhönnu, deildarstjóra.
Helstu verkefni og ábyrgð
Almenn og sérhæfð hjúkrun
Virk þátttaka í endurhæfingu sjúklinga
Virk þátttaka í teymisvinnu
Hæfniskröfur
Íslenskt sjúkraliðaleyfi
Jákvætt viðmót, frumkvæði og góð samskiptahæfni
Áhugi á hjúkrun aldraðra
Sjálfstæði í vinnubrögðum
Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, sjúkraliði, hjúkrun, teymisvinna, endurhæfing
Tungumálahæfni: íslenska 4/5
Staðsetning: Túngata 26, 101 Reykjavík
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 19.03.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraliði á taugaendurhæfingardeild Landakoti
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
06.03.2026
Umsóknarfrestur
19.03.2026