Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Sumarstörf - Hjúkrunarfræðingar/hjúkrunarnemar HSN Sauðárkróki

Staðsetning

Norðurland vestra

Starfshlutfall

60-100%

Starf skráð

09.03.2026

Umsóknarfrestur

19.03.2026

Sumarstörf - Hjúkrunarfræðingar/hjúkrunarnemar HSN Sauðárkróki

Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) á Sauðárkróki óskar eftir hjúkrunarfræðingum og hjúkrunarnemum í sumarafleysingar á hjúkrunar- og sjúkrasviði. Ráðningartími og starfshlutfall er samkv. samkomulagi.

Erum einnig opin fyrir því að ráða inn til skemmri eða lengri tíma, allt eftir samkomulagi við viðkomandi, allt niður í einstaka helgar eða vaktir.

Húsnæði í boði.

Hér má sjá frekari upplýsingar um HSN á Sauðárkróki: Fagmennska, samvinna og virðing í fyrirrúmi

Helstu verkefni og ábyrgð

Í starfinu felst ábyrgð á öllum almennum verkefnum hjúkrunarfræðinga samkvæmt lögum og reglugerðum. Einnig að unnið sé samkvæmt markmiðum hjúkrunar, deildarinnar og stofnunarinnar.

Hæfniskröfur

  • Fullgilt hjúkrunarpróf og íslenskt starfsleyfi, staðfesting á námi fyrir nema

  • Góð færni í íslensku skilyrði

  • Frábær samskiptahæfni, jákvæðni og sveigjanleiki

  • Reynsla og áhugi á teymisvinnu

  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

  • Hreint sakavottorð, gott orðspor og ökuleyfi

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Með umsókn skal einnig fylgja afrit af starfsleyfi og prófskírteinum. Fyrir nema skal fylgja með staðfesting á námi.

Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfstorg.is með því að smella hér fyrir neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.

HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntun á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.

Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.

Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing.

Starfshlutfall er 60-100%

Umsóknarfrestur er til og með 19.03.2026

Nánari upplýsingar veitir

Sigurbjörg Kristr Snjólfsdóttir

yfirhjúkrunarfræðingur svæðis

Tölvupóstur: sigurbjorg.kristrun.snjolfsdottir@hsn.is

Sími: 432 4220

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Sumarstörf - Hjúkrunarfræðingar/hjúkrunarnemar HSN Sauðárkróki

Staðsetning

Norðurland vestra

Starfshlutfall

60-100%

Starf skráð

09.03.2026

Umsóknarfrestur

19.03.2026