
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarstörf - Starfsfólk í aðhlynningu HSN Sauðárkróki
Staðsetning
Norðurland vestra
Starfshlutfall
60-100%
Starf skráð
09.03.2026
Umsóknarfrestur
19.03.2026
Sumarstörf - Starfsfólk í aðhlynningu HSN Sauðárkróki
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Sauðárkróki óskar eftir starfsfólki við aðhlynningu á hjúkrunardeildir í sumarafleysingar. Ráðningartími og starfshlutfall er samkvæmt samkomulagi.
Hér má sjá frekari upplýsingar um HSN á Sauðárkróki: Fagmennska, samvinna og virðing í fyrirrúmi
Helstu verkefni og ábyrgð
Umönnun einstaklinga í samvinnu við fagaðila
Þátttaka í teymisvinnu
Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Frábær samskiptahæfni, jákvæðni og sveigjanleiki
Góð færni í íslensku
Hreint sakavottorð og gott orðspor
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Aldan, stéttarfélag hafa gert.
Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Með umsókn skal einnig fylgja afrit af prófskírteinum ef við á.
Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfstorg.is með því að smella hér fyrir neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.
HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntun á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.
Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.
Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing.
Starfshlutfall er 60-100%
Umsóknarfrestur er til og með 19.03.2026
Nánari upplýsingar veitir
Sigurbjörg Kristr Snjólfsdóttir
yfirhjúkrunarfræðingur svæðis
Tölvupóstur: sigurbjorg.kristrun.snjolfsdottir@hsn.is
Sími: 432 4220

Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarstörf - Starfsfólk í aðhlynningu HSN Sauðárkróki
Staðsetning
Norðurland vestra
Starfshlutfall
60-100%
Starf skráð
09.03.2026
Umsóknarfrestur
19.03.2026